fbpx
Laugardagur 23.nóvember 2024
Pressan

Vara við svikum á Tenerife sem geta reynst ferðalöngum dýrkeypt

Ritstjórn Pressunnar
Fimmtudaginn 13. apríl 2023 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ef eitthvað hljómar of gott til að vera satt, þá er það því miður oft raunin.“

Það getur borgað sig að hafa þessa setningu í huga þegar farið er til Tenerife eða annarra ferðamannastaða og óprúttnir sölumenn reyna allt sem þeir geta til að pranga upp á þig ódýrum símum eða spjaldtölvum.

Briget Manning, bresk kona á níræðisaldri, lenti aldeilis illa í því á Tenerife fyrir skemmstu þegar sölumaður reyndi að selja henni „hágæða“ spjaldtölvu fyrir aðeins 150 pund, eða 25 þúsund krónur. Og það sem var enn betra: Hún þurfti aðeins að leggja út 26 pund, 4.400 krónur, fyrir að taka tölvuna með sér heim og prófa hana.

Eftir að hafa vandræðast í smástund með að breyta tungumálinu úr spænsku í ensku sneri hún aftur í verslunina í Los Cristianos, daginn sem hún flaug heim, og ákvað að ganga frá kaupum á tölvunni.

Fékk áfall

Þegar hún kom heim til Bretlands sá hún sér til skelfingar að hún hafði verið rukkuð um 2.128 pund, rúmar 360 þúsund krónur. Um var að ræða peninga sem hún hafði unnið sér inn með því að taka að sér þrif eftir að hún fór á eftirlaun.

„Þetta virtist vera gott tilboð og sölumennirnir voru mjög sjarmerandi,“ segir hún og bætir við að hún hafi verið alveg miður sín síðan hún komst að svikunum. „Ég er búin að gráta í marga daga og sef eiginlega ekkert,“ segir Bridget sem er 84 ára ekkja.

Fréttavefurinn Thisismoney.co.uk fjallaði um mál Bridget í vikunni og segist hafa heyrt af fjölmörgum sambærilegum dæmum frá breskum ferðamönnum á Tenerife. Tenerife nýtur mikilla vinsælda meðal Íslendinga og hefur verið fjallað um sambærileg tilfelli hjá íslenskum ferðamönnum. Þá rataði frétt um mál Bridge í Facebook-hóp Íslendinga á Tenerife.

Svona fara þeir að þessu

En hvernig fara svikahrapparnir að þessu?

Bridget segir að sölumennirnir hafi tjáð henni að kortið hennar – sem hún notar á ferðalögum – hafi ekki virkað. Eftir þrjár tilraunir ákvað hún að prófa annað kort sem hún er með hjá spænska bankanum Santander og þurfti hún að slá inn PIN-númer.

Bridget rifjar upp að sölumaðurinn hafi danglað posanum fyrir framan hana og haldið fyrir skjáinn þannig að hún sá ekki upphæðina sem hann sló inn á posann og þá hafi engin kvittun prentast út. Þá vekur hún athygli á því að sölumennirnir hafi lagt ríka áherslu á að hún kæmi í verslunina síðasta daginn til að ganga frá kaupunum en tilgangur þess sé augljós. Þegar svikin koma í ljós sé viðkomandi alla jafna mörg hundruð kílómetrum í burtu í öðru landi og erfiðara en ella að bregðast við.

Bridget kveðst hafa haft samband við Santander-bankann og tilkynnt svikin. Þar fékk hún þau skilaboð að bankinn gæti ekkert gert enda hefði hún sjálf slegið inn PIN-númerið til að greiða fyrir vöruna. Í frétt Thisismoney.co.uk kemur fram að Santander-bankinn hafi þó greitt henni þau 2.128 pund sem hún tapaði eftir að hafa blaðamaður spurðist fyrir um málið hjá bankanum.

Segist talsmaður bankans hvetja ferðalanga til að ganga úr skugga um að þeir séu rukkaðir um rétta upphæð með því að fylgjast vel með því sem viðkomandi sölumaður slær inn á posann.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Maðurinn sem á að verða næsti varnarmálaráðherra Bandaríkjanna borgaði þöggunargreiðslu til konu sem sakaði hann um nauðgun

Maðurinn sem á að verða næsti varnarmálaráðherra Bandaríkjanna borgaði þöggunargreiðslu til konu sem sakaði hann um nauðgun
Pressan
Fyrir 2 dögum

Rússar hóta að ráðast á Pólland: Skutu langdrægri eldflaug á Úkraínu í morgun

Rússar hóta að ráðast á Pólland: Skutu langdrægri eldflaug á Úkraínu í morgun
Pressan
Fyrir 3 dögum

Piers Morgan biður grenjandi vinstri menn vinsamlegast um að halda kjafti – „Ég er kominn með nóg af þessu“

Piers Morgan biður grenjandi vinstri menn vinsamlegast um að halda kjafti – „Ég er kominn með nóg af þessu“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Fleiri ríki loka sendiráðum sínum í Kænugarði – Sálfræðihernaður hjá Rússum?

Fleiri ríki loka sendiráðum sínum í Kænugarði – Sálfræðihernaður hjá Rússum?
Pressan
Fyrir 4 dögum

Demókratar þurfi að fara í naflaskoðun eftir að þau gleymdu mikilvægustu lexíu fyrri ára – „Þetta snýst um efnahaginn, fíflið þitt“

Demókratar þurfi að fara í naflaskoðun eftir að þau gleymdu mikilvægustu lexíu fyrri ára – „Þetta snýst um efnahaginn, fíflið þitt“
Pressan
Fyrir 4 dögum

Úkraínumenn sagðir vera búnir að skjóta bandarískri eldflaug á Rússland

Úkraínumenn sagðir vera búnir að skjóta bandarískri eldflaug á Rússland
Pressan
Fyrir 4 dögum

Þetta eru umdeildustu skoðanir næsta heilbrigðisráðherra Bandaríkjanna

Þetta eru umdeildustu skoðanir næsta heilbrigðisráðherra Bandaríkjanna
Pressan
Fyrir 5 dögum

Bakpokaferðalag 19 ára stúlkna breyttist í martröð – Berjast fyrir lífi sínu eftir ferð á barinn

Bakpokaferðalag 19 ára stúlkna breyttist í martröð – Berjast fyrir lífi sínu eftir ferð á barinn