fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Fréttir

Er vorið endanlega komið? Einar segir eftirtektarverðar breytingar fram undan næstu daga

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 11. apríl 2023 14:30

Líkur á hreti eru litlar í næstu viku en aftur á móti eru þær miklar á að framsókn vorsins verði eindregin.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur hjá Bliku, segir eftirtektarverðar breytingar fram undan í veðrinu hér á landi um miðjan þennan mánuð.

„Hér við land er til skemmri tíma útlit fyrir heldur lækkandi frostmarkshæð, en fremur hægum vindi. Út vikuna snjóar annað veifið og lítillega á fjallvegum norðantil og sums staðar næturfrost eins og gengur. En á sunnudag/mánudag, þ.e. um miðjan mánuðinn er spáð eftirtektarverðum breytingum á lofthringrásinni við N-Atlantshaf,“ segir Einar í færslu sem hann birti á vef Bliku í morgun.

Einar segir að þetta eigi bæði við um spár Evrópsku reiknimiðstöðvarinnar (ECMWF) og Bandarísku alríkisveðurstofunnar (GFS).

Hann segir að safnspá Evrópsku reiknimiðstöðvarinnar frá því í morgun vera áhugaverða.

„Meginspáin og allar 50 safnspárnar reikna með  háþrýstisvæði yfir Bretlandseyjum,“ segir hann og bætir við að þetta hafi í för með sér sunnan stæðan vind í háloftunum hér við land. Á þessum árstíma fylgi þá að mestu milt og vorlegt veður en oftar en ekki væta í einhverjum mæli sunnantil.

„Safnspárnar gera síðan ráð fyrir því að hæðin færist í aukana og verði eiginlega fyrirstöðuhæð,“ segir Einar og bætir við að dagan 19. til 21. apríl kerfið flokki safnspárnar í þrjá nokkuð jafna þriðjunga.

„Tveir þeir fyrri eru keimlíkur með hálofthæðina yfir Skotlandi, Norðursjó og S-Noregi. Hér á landi þá hiti markvert yfir meðallagi og S eða SV-þeyr.  1/3 safnspánna færa hæðina austar. Gangi það eftir eru meiri líkur á svalara loftið með uppruna úr suðvestri og hálfgerðu kalsaveðri sunnan- og vestanlands.

Einar nefnir svo á að aðalspá Evrópsku reiknimiðstöðvarinnar miðvikudaginn 19. apríl reikni með mildu veðri en aðalspá hinnar bandarísku sé með svalari gerðina ofan á.

„Með því að skoða langtímaspár með þessum hætti lærist smám saman að meta óvissu og líkur. Engar safnspár gera ráð fyrir N-lægum vindi þar sem kalda loftið af ísasvæðunum ætti greiðan aðgang. Þýðir samt ekki að líkur á slíku séu núll, en safnspár ECMWF gefa klárlega til kynna að líkurnar á hreti þessa daga eru litlar. Á móti eru þær miklar á að framsókn vorsins verði nokkuð eindregin í næstu viku.“

Einar segir að um 30-35 prósenta líkur séu á éljum eða slydduéljum og heldur lægri hita suðvestan- og vestanlands. Hann segir að það ætti ekki beint að koma á óvart enda kalsasuðvestan- og vestanátt ansi algeng um miðjan apríl og fram yfir sumarbyrjun.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins styður ekki Coda Terminal verkefnið við Vellina – Þyrfti aðkomu minnihlutans til að koma málinu í gegn

Bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins styður ekki Coda Terminal verkefnið við Vellina – Þyrfti aðkomu minnihlutans til að koma málinu í gegn
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Líkfundur á Tenerife í tengslum við leitina að Jay Slater

Líkfundur á Tenerife í tengslum við leitina að Jay Slater
Fréttir
Í gær

Trump í fyrsta viðtalinu eftir árásina – „Ég á að vera dauður“

Trump í fyrsta viðtalinu eftir árásina – „Ég á að vera dauður“
Fréttir
Í gær

Safnað fyrir fjölskyldu Viðars – „Setti mig og börnin okkar alltaf í fyrsta sæti“

Safnað fyrir fjölskyldu Viðars – „Setti mig og börnin okkar alltaf í fyrsta sæti“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Harmleikur í hitabylgju – Gleymdi tveggja ára dóttur sinni úti í bíl með hræðilegum afleiðingum

Harmleikur í hitabylgju – Gleymdi tveggja ára dóttur sinni úti í bíl með hræðilegum afleiðingum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Guðrún ætlar ekki að flytja inn í Biskupsgarð – Agnes flytur út og glæsihýsið verður selt

Guðrún ætlar ekki að flytja inn í Biskupsgarð – Agnes flytur út og glæsihýsið verður selt
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Guðmundur Ingi segir verið að hafa almenning að fíflum

Guðmundur Ingi segir verið að hafa almenning að fíflum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Fleiri Loga töskur dúkka upp – „Hvað er í gangi?“

Fleiri Loga töskur dúkka upp – „Hvað er í gangi?“