Egill Helgason sjónvarpsmaður segist ekki eiga orð yfir færslu sem birtist á bloggi Morgunblaðsins 27. mars síðastliðinn.
„Það er margur óþverrinn sem birtist á bloggi Morgunblaðsins – og yfirleitt aldrei neitt sem vitglóra er í. Moggabloggið er algjör ruslakista. En hér tekur steininn úr – bullandi gyðingahatur. Maður á ekki orð,“ skrifar Egill í færslu á Facebook.
Um er að ræða blogg Arnar Sverrissonar með fyrirsögninni; Svo mæltu hinir lærðu öldungar frá Zion. Alheimsstjórn.
Blog Morgunblaðsins er opið fyrir hvern sem er sem þar vill skrifa skoðanir sínar.