Sunna Ben Guðrúnardóttir, Dj Sunna Ben, hefur verið ráðin samfélagsmiðlafulltrúi Hörpu tónlistar- og ráðstefnuhúss.
Staðan er ný innan markaðsdeildar Hörpu og mun Sunna starfa náið með Hildi Ottesen Hauksdóttur, markaðs- og kynningarstjóra Hörpu. Sunna hefur starfað sem samfélagsmiðlafulltrúi fyrir Vegan búðina og sem samfélagsmiðlaráðgjafi hjá TVIST–auglýsingastofu og Hugsmiðjunni.