Philip Grétarsson er verslunarstjóri hjá Innréttingum og tækjum þar sem svört klósett og gylltir handklæðaofnar njóta mikilla vinsælda. DV/ERNIR
Innréttingar og tæki er rómuð sérvöruverslun með allt fyrir baðherbergið. Úrvalið er einstakt, þar á meðal handklæðaofnar í 300 litum, fagurlituð hreinlætistæki, hæstmóðins innréttingar, blöndunartæki með tökkum og skolunartæki fyrir vistvænni klósettferðir.
Þegar sólin hækkar á lofti fer fólk gjarnan í framkvæmdagír. Mörg hafa þegar sett sig í startholurnar og eru farin að sanka að sér tækjum og hlutum til framkvæmdanna, til að hafa allt tiltækt á staðnum og ekki þurfi að bíða eftir sérpöntunum þegar iðnaðarmennirnir koma eða fólk ræðst sjálft í framkvæmdir á baðherberginu. Kannski er það lærdómur frá Covid-tímanum, þegar vörur skiluðu sér seint til landsins, og kenndi okkur að sýna meiri forsjálni og fyrirhyggju í aðdraganda framkvæmda,“ segir Philip Grétarsson, verslunarstjóri hjá Innréttingum og tækjum.
„Við erum sérvöruverslun og einbeitum okkur að því að hafa annað og öðruvísi vöruval en fæst í hefðbundnum byggingarvöruverslunum. Fólk kemur í Innréttingar og tæki til að fá eitthvað annað og hefur iðulega orð á því, eins og kúnni um daginn sem kallaði nýjasta glerið í sturtuveggi hjá okkur „gróðurhúsagler“. Það er slétt að innan en eins og bárur að utan, kallast „Waves“ og er glært en sem sést ekki í gegn um,“ upplýsir Philip.
Persónulegt yfirbragð tískunnar
Fyrirtækið hefur verið í eigu sömu fjölskyldunnar frá upphafi.
„Það voru amma mín og afi sem stofnuðu heildsöluna Jensen og Bjarnason árið 1945, en þegar foreldrar mínir tóku við fyrirtækinu árið 1993 opnuðu þau verslun samhliða heildsölunni og nefndu hana Innréttingar og tæki. Við hjónin svo tókum við rekstrinum af þeim og rekum verslunina í dag með syni okkar sem er okkar hægri hönd. Allt sem við kemur hönnun og fagurfræði innanhúss er sameiginlegt áhugamál fjölskyldunnar og lærði dóttir okkar innanhússhönnun. Ég held reyndar að allir hafi gaman af fallegum hlutum og baðherbergi er hægt að gera svo ótrúlega falleg. Svo ég vitni í Sindra Sindrason sjónvarpsmann í Heimsókn, þá á að vera svolítill spa-bragur og hótelfílingur á baðherbergjum heimila, en samt með hlýlegu sniði þar sem heimilisfólkinu líður vel,“ segir eigandinn Íris Jensen, innan um glæstar innréttingar og tæki fyrir baðherbergi.
„Í haust munum við að fagna 30 ára afmæli búðarinnar og gaman að sjá hvernig tískan hefur farið í hring á þessum þrjátíu árum. Nú eru aftur komnar í tísku glæsilegar innréttingar í dökkbláum og grænum litum með öldugleri framan á skúffum og með gylltum eða brons höldum, eins og var hæstmóðins á árunum í kringum 1993. Við sjáum líka flotta litatóna eins og ljósgrábrúna í innréttingum þar sem hægt er að fá handlaugar í sama lit og með gylltum blöndunartækjum í stíl. Það eina sem var ekki áberandi í denn en er afar vinsælt nú eru svört og dökkbrún klósett. Bleik og ljósblá klósett eru líka mikið „inn“, en þau svörtu eru langvinsælust,“ upplýsir Íris.
Hún segir allt í tísku þegar kemur að útliti baðherbergja.
„Yfirbragðið er persónulegt og má vera eftir smekk hvers og eins. Það er helst að hvíttuð eik sé hverfandi. Nú er meira um dökka hnotu og rauðari eik í baðinnréttingum og ekki líður á löngu þar til kirsuberjaviðurinn kemur inn á ný, en Danir eru þegar byrjaðir að hanna eldhúsinnréttingar úr kirsuberjaviði.“
Ofnar úr glansandi gulli
Ýmsar spennandi nýjungar er að finna hjá Innréttingum og tækjum nú.
„Þar má nefna Switch-blöndunartækin frá fremstu hönnuðum Ítalíu á þessu sviði, Fima Carlo Frattini. Ítalirnir segja að unga kynslóðin vilji hafa allt einfalt og tafarlaust, og með Switch-blöndunartækjunum er einfaldlega ýtt á takka til að komast í steypibaðið, eftir að hafa forstillt hitastigið og vatnsbununa með einföldum hætti á öðrum takka. Þarna er litagleðin líka í fyrirrúmi og hægt að velja blöndunartækin í átta litum fyrir handlaugar og sturtu. Þetta er óhemju flott, handhægt og þægileg tækni fyrir unga sem aldna,“ greinir Philip frá.
Þar ræður litadýrð ríkjum í svo mörgu og allt svo fallegt.
„Við erum með gríðarflott úrval af handklæðaofnum sem fást í mismunandi formum og yfir 300 litum. Það getur verið hausverkur að velja úr 300 litum en flest hafa gert sér í hugarlund hvernig baðherbergið á að líta út og eiga það sameiginlegt að vera orðin leið á þessum venjulegu handklæðaofnum sem hafa verið eins í áratugi. Þannig vilja sum appelsínugula eða skærgræna handklæðaofna á meðan önnur velja mjúka brúna eða heita hörliti. Mörg falla fyrir möttum litum og til dæmis er mjög flott að vera með handklæðaofn í möttu gulli og með blöndunartæki í stíl. Þá er hægt að fá hjá okkur Dubai-glansgyllta ofna sem eru eins og skínandi gull og mörg eiga ljúfar minningar um síðan hjá ömmu og afa á tíunda áratugnum,“ segir Philip.
Með allt fyrir baðherbergið
Hreinlætistæki í litum gefa baðherbergjum ferskan blæ og auðvelt er að bæta við hlutum í sama lit til að ná fram fallegu heildarútliti.
„Sturtubotnar í litum njóta mikilla vinsælda og þótt önnur hreinlætistæki í herberginu séu ekki í sama lit og sturtubotninn er hægt að finna sama lit í höldum, handklæðaofnum og blöndunartækjum. Nú hafa bæst við flottir og handhægir sturtuklefar frá Vans sem smellast saman í stað þess að notaðar séu skrúfur eða silíkon til verksins. Þeir eru fáanlegir í boga eða kantaðir og er liðunum einfaldlega læst saman. Þá er einfalt að taka hann í sundur og hafa meðferðis í til dæmis bústaðinn. Klefarnir frá Vans eru auk þess mikið augnayndi og fást nú stællegir með svörtum ramma en líka í krómi og hvítu. Þeir svörtu njóta nú mikilla vinsælda og við köllum hann „kvennaklefann“ því konur eru fljótar að spotta út hvað er flott. Þær höfðu áður lítinn áhuga á sturtuklefum en nú fá karlarnir engu að ráða lengur,“ segir Philip og hlær.
Í Innréttingum og tækjum fæst allt fyrir baðið, allt frá baðsloppum og sápum, yfir í ljós, spegla, hreinlætistæki og innréttingar.
„Við reynum að bjóða upp á allt sem þarf fyrir baðherbergið og erum einnig með frábæra kubbaskápa undir þvottavélar með stórri skúffu og balapalli sem er hægt að draga út til að brjóta saman þvott og setja í balann. Neðri skúffan er hentug undir óhreina tauið eða þvottaefnin,“ segir Íris sem lifir og hrærist í þessum skemmtilega bransa.
„Mig klæjar oft í puttana að prófa það nýjasta og væri svo til í að prófa nýju Switch-blöndunartækin en einnig vistvænu blöndunartækin sem koma til okkar um næstu mánaðamót og fást líka í átta litum. Þetta eru blöndunartæki sem eru sett við hliðina á salerninu og hugsuð til skolunar eftir klósettferðir. Þá er salernispappírnum sleppt. Þetta er framtíðin og nú þegar veruleikinn í milljónaborgum eins og Los Angeles þar sem er bannað að setja klósettpappír í klósettið. Skolun er umhverfisvænni og hreinlátari kostur, auk þess sem úrgangurinn er náttúrulegur og vistvænn.“
Hjá Innréttingum og tækjum fæst líka fallegur mosi sem er vinsæll til skreytinga og betri hljóðvistar á veggi og í loft fyrirtækja, veitingahúsa og heimila.
„Margir setja líka mosa í fallegan ramma inn í baðherbergi sín. Það hefur róandi áhrif, og færir náttúruna inn.“
Innréttingar og tæki eru í Ármúla 1. Sími 588 7332. Netfang i-t@i-t.is. Skoðið úrvalið á i-t.is.