Joao Cancelo gæti óvænt snúið aftur til Manchester City.
Það er Calciomercato sem heldur þessu fram, en Portúgalinn er sagður ósáttur hjá Bayern Munchen, þar sem hann er á láni frá Englandsmeisturunum.
Cancelo fór frá City eftir að hafa átt í útistöðum við knattspyrnustjórann Pep Guardiola.
Cancelo fór vel af stað með Bayern en hann hefur hins vegar verið bekkjaður í síðustu tveimur leikjum vegna nýs leikkerfis.
Þá er talið ólíklegt að Cancelo byrji stórleikinn gegn Paris Saint-Germain í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Um seinni leik liðanna er að ræða en Bayern leiðir 1-0 eftir fyrri leikinn í París.
Lánssamningur Cancelo við Bayern rennur út í sumar en svo getur félagið keypt hann á 70 milljónir punda.
Samkvæmt Calciomercato er Bayern hins vegar á því eins og er að nýta sér ekki það ákvæði.
Fari svo að Cancelo snúi aftur til City í sumar er ekki ólíklegt að hann yrði seldur annað í kjölfarið.