Fasteignir ganga kaupum og sölum, þar á meðal stórglæsileg einbýlishús. Þessi 10 einbýlishús eru þau dýrustu sem eru á sölu í dag samkvæmt fasteignavef DV.
10. Súlunes 27, Garðabæ – 195 milljónir króna.
Stærð 296,5 fm, þar af bílskúr 48,8 fm, byggt 1991.
Fallegt og rúmgott einbýlishús á tveimur hæðum með tveimur aukaíbúðum og tvöföldum bílskúr.
Eign skiptist í forstofu, gestasalerni, fataherbergi, gang/hol, stofu/borðstofu, glerskála, eldhús, hjónaherbergi, baðherbergi og þvottahús á efri hæð. Á neðri hæð er herbergi og óskráð rými sem er nýtt sem sjónvarpshol. Hluti neðri hæðar hefur verið nýttur sem aukaíbúð, er opið á milli í dag og nýtist sem hluti af húsinu en auðvelt að loka fyrir og nýta sem séríbúð. Skiptist í forstofu/gang, eldhús, baðherbergi og tvö svefnherbergi. Neðri hæð undir bílskúr er innréttuð sem íbúð og skiptist í stofu, svefnherbergi, eldhús og baðherbergi. Nánari upplýsingar hér.
9. Blikanes 8, Garðabæ – 198 milljónir króna.
Stærð 257 fm, þar af bílskúr 48 fm, byggt 1967.
Fallegt og vel skipulagt fjölskylduhús á einni hæð í Arnarnesinu. Eignin skiptist í setustofu/borðstofu, arinstofu, fjögur svefnherbergi, tvö baðherbergi, út frá öðru þeirra er útgengt út á veröndina á bak við húsið þar sem er stór timburverönd með heitum potti og útihúsi. Bílskúrnum hefur verið breytt í herbergi sem gengið er inn í innan frá húsinu og að utan er gengið inn í geymsla sem var stúkuð af fremst í bílskúrnum. Nánari upplýsingar hér.
7. – 8. Laugavegur 72, Reykjavík – 199 milljónir króna.
Stærð 231,3 fm, þar af bílskúr 37,3 fm, byggt 1901, bílskúr 1961.
Virðulegt og falllegt eldra einbýlishús á þremur hæðum, með góðu verslunarrými á fyrstu hæð, sem er með sér fastanúmer. Framhluti hússins er friðaður en bakhluti ekki. Sérstæður bílskúr á baklóð. Sér bílastæði baka til við húsið. Talsverðir möguleikar eru á að byggja við húsið að baka til. Einnig að byggja við bílskúr sem yrði íbúð með sér fastanúmeiri.
Eignin skiptist í; götuhæðin skiptist í verslunarrými, inn af því er lager, kaffistofa og snyrting. Miðhæð: tveir sér inngangar, stofa, borðstofa, herbergi, baðherbergi og stigagangur. Rishæð: stigi, fjögur herbergi, geymsla, snyrting og eldhús. Nánari upplýsingar hér.
7. – 8. Austurgerði 5, Reykjavík – 199 milljónir króna.
Stærð 253 fm, þar af bílskúr 37,3 fm, byggt 1971.
Sérlega glæsilegt og mikið endurnýjað einbýlishús með 90 fm þriggja herbergja íbúð á jarðhæð með sér inngangi. Rúmgóður bílskúr með rafmagnshurðaopnara.
Eign skiptist í forstofu, forstofuherbergi, hol, borðstofu, eldhús, stofu, baðherbergi og þvottahús. Á herbergjagangi eru tvö svefnherbergi. Íbúð á neðri hæð skiptist í forstofu, hol, eldhús, stofu, tvo svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Nánari upplýsingar hér.
6. Kleifakór 19, Kópavogi – 227,5 milljónir króna
Stærð 357,9 fm, þar af bílskúr 42,4 fm, byggt 2006.
Glæsilegt og vel skipulagt einbýlishús á tveimur hæðum ásamt innbyggðum tvöföldum bílskúr.
Eign skiptist í anddyri, skrifstofu, baðherbergi, eldhús, borðstofu og stofu á efri hæð. Á neðri hæð er lesstofa, sjónvarpsrými, tómstundaherbergi, fjögur svefnherbergi, þvottahús, geymsla og baðherbergi. Búið er að innrétta útigeymslu sem svefnherbergi. Nánari upplýsingar hér.
5. Fróðaþing 25, Kópavogi – 235 milljónir króna.
Stærð 393,8 fm, þar af bílskúr 42,2 fm, byggt 2009.
Glæsilegt og bjart einbýlishús á tveimur hæðum með tveimur íbúðum báðar með sérinngangi á hornlóð.
Eign skiptist í forstofu, eldhús, stofu og borðstofu, hol/gang, fjögur svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu/gestasalerni á efri hæð. Á neðri hæð er forstofa, hol/gangur, eldhús, stofa/borðstofa, tvo svefnherbergi, hjónasvíta með fataherbergi og baðherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymsla. Nánari upplýsingar hér.
4. Hraungata 10, Garðabæ – 250 milljónir króna.
Stærð 345,2 fm, þar af bílskúr 35,1 fm, byggt 2017.
Einkar glæsilegt einbýlishús á þremur hæðum. Á jarðhæð er 120 fm íbúðarrými sem nýta má sem sér íbúð og eða sem hluta af húsi.
Eign skiptist í forstofu, gestasnyrtingu, eldhús, stofu og borðstofu á miðhæð. Á efstu hæð er fjölskyldurými, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Á jarðhæð er opið alrými. Nánari upplýsingar hér.
3. Huldubraut 46, Kópavogi – 267 milljónir króna.
Stærð 330,4 fm, þar af bílskúr 46 fm, byggt 1992.
Einbýlishús á tveimur hæðum á fallegri sjávarlóð með óhindrað útsýni yfir Fossvoginn og Skerjafjörðinn.
Eign skiptist í eldhús, stofu, sex svefnherbergi, þrjú baðherbergi, þvottahús og geymslu. Á neðri hæð er 65 fm íbúð. Nánari upplýsingar hér
2. Dýjagata 16, Garðabæ – 298 milljónir króna.
Stærð 396,7 fm, þar af bílskúr 67,1 fm, byggt 2015..
Einbýlishús með þreföldum bílskúr. Auðvelt er að gera aukaíbúð á neðri hæð. Lóð er mjög stór eða 1.594 fm með byggingarrétt fyrir allt að 880 fm hús.
Eign skiptist í forstofu, hol, eldhús, borðstofu, stofu, hjónaherbergi með baðherbergi, gestasnyrtingu og þvottahús á aðalhæð. Á efri hæð er pallur sem nýtist sem herbergi eða vinnu/skrifstofurými. Á neðri hæð er opið rými, svefnherbergi og baðherbergi. Í kjallara er forstofa, eldhús, stofa, svefnherbergi og baðherbergi. Nánari upplýsingar hér.
1.Hólavallagata 11, Reykjavík – 350 milljónir króna.
Stærð 313,5 fm, þar af bílskúr 32,6 fm, byggt 1934.
Einbýlishús á þremur hæðum, húsið skiptist í þrjár íbúðir
Kjallaraíbúð skiptist í stofu, eldhús og baðherbergi, möguleiki er á þremur svefnherbergjum. Miðhæð skiptist í stofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og sólskála. Efsta hæð skiptist í stofu, borðstofu, sólskála, eldhús, tvö svefnherbergi og baðherbergi. Nánari upplýsingar hér.