Einbýlishús á Njálsgötu er komið í sölu á fasteignavef DV.
Um er að ræða 181,1 fm eign, á þremur hæðum, sem byggð var árið 1910.
Búið er að skipta eigninni í þrjár íbúðir, sem gefur góða útleigumöguleika og tekjur. Einnig gæti stórfjölskyldan sameinast hér undir einu þaki.
Aðalhæð skiptist í anddyri, gestasnyrtingu, eldhús, stofu, gengið er upp í ris þar sem eru tvö svefnherbergi og baðherbergi. Gengið er niður stiga úr anddyri í kjallara, þar sem þvottahús og geymsla er.
Í kjallara er anddyri, baðherbergi, stofa og svefnherbergi. Þvottahús er sameiginlegt með aðalhæð. Á jarðhæð er stúfíóíbúð með eldhúskrók og baðherbergi með sturtu.
Geymsluskúr er á lóðinni.
Þú getur lesið nánar um eignina og skoðað fleiri myndir á fasteignavef DV.