fbpx
Þriðjudagur 21.janúar 2025
Fókus

Valgeir eys lofi yfir ríkissáttasemjara – „Klárt merki um hversu stór ein­stak­ling­ur Ástráður er“

Fókus
Fimmtudaginn 2. mars 2023 17:01

Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Markaðsmaðurinn Valgeir Magnússon, sem lengi gekk undir nafninu Valli Sport, lofar í hástert Ástráð Haraldsson, settan ríkissáttasemjara í deilu SA og Eflingar. Ástráður náði að höggva á hinn harða hnút í deilunni með nýrri miðlunartillögu sem borin verður undir atkvæði félagsmanna í báðum félögum.

Valgeir er þó ekki að hrósa sáttasemjaranum fyrir þetta heldur fyrir það hvernig hann hafi deilt heiðrinum af þessu afreki með öðrum. Vísar hann þar til stórskemmtilegrar ljósmyndar sem ljósmyndari Morgunblaðsins tók í kjölfar kynningarfundar um miðlunartillöguna, þar sem Ástráður smellti kossi á fréttamann Stöðvar, Heimir Má Pétursson, sem vakið hefur athygli fyrir afar skelegga og greinargóða umfjöllun um vinnudeiluna, og þótti mörgum sem Heimir væri kominn áleiðis í að sætta deiluaðila í umræðuþættinum Hringborðið fyrir skömmu.

Valgeir telur að með þessu tiltæki hafi Ástráður verið að deila heiðrinum af lausn kjaradeilunnar, í stað þess að eigna sér athyglina við þessi tímamót. Gefum Valgeiri orðið:

„Í stjórn­un er sú týpa sem stækk­ar fólk í kring­um sig og gef­ur fólki kred­it fyr­ir sitt inn­legg mun æski­legri en sú sem eignar sér heiður­inn og tal­ar um sjálfa sig út í eitt. Per­sónu­lega hef ég margoft lent í þeim pytti að hefja setn­ing­ar á „Ég….. “ eða segja sér­stak­lega frá mín­um þætti í verk­efn­um og gleyma af gefa fólki heiðurinn sem það á skilið. Það er mik­ill lær­dóm­ur að leggja egóið til hliðar og átta sig á styrkn­um sem felst í því að gefa öðrum sviðsljósið og passa sig á að muna eft­ir þætti annarra í því að hlut­ir gangi vel. Því það er sjaldn­ast þannig að verk gangi vel vegna eins ein­stak­lings. Yf­ir­leitt er niðurstaðan góð vegna sam­spils og aðkomu margra ein­stak­linga. Þess vegna er mik­il­vægt að muna eft­ir þeim sem leggja lóð sín á vog­ar­skál­arn­ar. Þannig aukast lík­urn­ar á því að auk­in gæði skap­ist í framtíðinni. Það er fátt eins svekkj­andi og að vita sinn þátt í verk­efni og heyra svo ein­hvern tala op­in­ber­lega eða á fundi um verk­efnið eins og hann eða hún hafi gert allt ein(n).“

Valgeir segist hafa verið illilega minntur á að hann væri á rangri leið fyrir nokkrum árum þegar hann var uppnefndur Valli Gort. Hafi þetta orðið til þess að hann varð meðvitaður um eigin sjálfhverfu og tók að vara sig á slíkum tilhneigingum í fari sínu. Valgeir segir að kossinn sem Ástráður smellti á fréttamanninn sýni hve stór einstaklingur Ástráður sé:

„Að sjá Ástráð Har­alds­son, sett­an rík­is­sátta­semj­ara, kyssa Heimi Pét­urs­son frétta­mann fyr­ir hans inn­legg í að sætt­ir náðust í deilu Efl­ing­ar og SA er klárt merki um hversu stór ein­stak­ling­ur Ástráður er. Vel gert.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Hannes Hólmsteinn opnar sig um sambúðina í Brasilíu – 47 ára aldursmunur

Hannes Hólmsteinn opnar sig um sambúðina í Brasilíu – 47 ára aldursmunur
Fókus
Í gær

Fékk þær erfiðu fréttir að hann yrði líklega ófrjór eftir meðferðina – „Við fengum einn mánuð til að reyna“

Fékk þær erfiðu fréttir að hann yrði líklega ófrjór eftir meðferðina – „Við fengum einn mánuð til að reyna“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Tilnefningar til Writers Guild-verðlaunanna

Tilnefningar til Writers Guild-verðlaunanna
Fókus
Fyrir 2 dögum

14 merki þess að veitingastaðurinn er slæmur

14 merki þess að veitingastaðurinn er slæmur
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Einn af helstu kvikmyndahöfundum sögunnar og maður sem bjó til ný viðmið í sjónvarpi“

„Einn af helstu kvikmyndahöfundum sögunnar og maður sem bjó til ný viðmið í sjónvarpi“
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Það er þjóðarharmur þegar heilt byggðarlag á Íslandi verður fyrir slíkum náttúruhamförum“

„Það er þjóðarharmur þegar heilt byggðarlag á Íslandi verður fyrir slíkum náttúruhamförum“