„Þessi maður er dagfarsprúður. En þegar fólk er reitt þá er auðvelt að ná því,“ segir íbúi í Reykjanesbæ og fyrrverandi nágranni Elíasar Georgssonar, 60 ára verkfræðings sem kærður hefur verið til lögreglu fyrir frelsissviptingu og líkamsárás á dreng á 12. ári.
RÚV greindi frá því í gær að mál Elísar frá því á sunnudagskvöld væri til rannsóknar hjá lögreglu. Í frétt RÚV kom fram að drengurinn, ásamt fleiri drengjum, hafi gert dyraat hjá Elíasi. Elías er í kjölfarið sakaður um að hafa setið fyrir drengjunum síðar um kvöldið, ráðist að þeim og dregið einn þeirra inn á heimili sitt þar sem hann læsti drenginn inni. Hélt hann drengnum föstum í tæplega níu mínútur og neitaði að hleypa honum út. Hafi foreldri eins drengjanna þurft að brjóta rúðu á útidyrahurð mannsins til að komast þangað inn og frelsa drenginn.
Eins og kom fram í frétt DV um málið hefur Elías að minnsta kosti tvisvar verið ákærður fyrir sambærileg brot.
DV hefur heyrt þær raddir að vítahringur hafi skapast vegna viðbragða Elíasar við bjölluati, sem valdi því að börnum þykir spennandi og eftirsóknarvert að gera at hjá honum. Einn íbúi gengur svo langt að segja að einelti og áreitni í garð Elíasar nái áratugi aftur í tímann:
„Hlutirnir eru ekki svartir og hvítir. Ég þekki þennan mann ekkert nema það að ég veit bara að við stríddum honum allir, ég og vinir mínir. Það er önnur hlið á þessu. Þetta er eineltismál líka. Börnin hans voru líka lögð í einelti,“ segir fyrrverandi nágranni.