fbpx
Laugardagur 14.desember 2024
Fókus

Ágúst Ólafur gerði merkilega uppgötvun -„Fréttirnar verða varla stærri“

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 2. mars 2023 09:30

Ágúst Ólafur Ágústsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ágúst Ólafur Ágústsson, fyrrum þingmaður Samfylkingarinnar vinnur nú að skýrslu fyrir Dýraverndarsamband Íslands. Segir hann verkefnið virkilega áhugavert og skoða tölur við vinnuna eins og hann geri gjarnan. 

Og mér tókst að gera risastóra(!) uppgötvun sem ég held að hafi ekki komið áður fram. Í fyrsta sinn síðan Ísland var numið fyrir rúmum 1.000 árum, býr fleira fólk en sauðfé á Íslandi! Núna búa um 380 þúsund manneskjur á landinu en einungis 365 þúsund rollur “ segir Ágúst Ólafur í færslu á Facebook.

Hann segir kindurnar hafa haft yfirhönduna árið á undan upp á 16 þúsund. Þegar ég var að fæðast voru rúmlega 800.000 kindur á Íslandi en einungis 220.000 manneskjur. Á þeim tíma voru erlendir ferðamenn einungis um 70 þúsund en eru nú yfir 2 milljónir,“ segir Ágúst Ólafur en hann er fæddur árið 1977.

Á sama tíma og fjöldi erlendra ferðamanna hefur 30-faldast og fjöldi Íslendinga næstum tvöfaldast hefur sauðfé fækkað um helming. Eitthvað segir þetta um breyttar matarvenjur. Hingað til hafa alltaf búið fleiri rollur á Íslandi en fólk. En ekki lengur. Fréttirnar verða varla stærri “ segir Ágúst Ólafur.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Fór að gráta eftir að hafa stundað kynlíf með 100 karlmönnum

Fór að gráta eftir að hafa stundað kynlíf með 100 karlmönnum
Fókus
Fyrir 2 dögum

Vandræði í paradís? – Hafdís og Kleini hafa eytt öllum myndum af hvort öðru á Instagram

Vandræði í paradís? – Hafdís og Kleini hafa eytt öllum myndum af hvort öðru á Instagram