Ung rússnesk stúlka á unglingsaldri fékk það verkefni í skóla sínum að teikna mynd til að styðja rússnesku hermennina sem eru að berjast í Úkraínu.
Stúlkunni hugnaðist ekki verkefnið og teiknaði í staðinn mynd til að mótmæla stríðinu. Teiknaði hún rússneska fánan og skrifaði á hann: „Nei við stríði“ og teiknaði úkraínska fánann þar sem á stóð „Dýrð sé Úkraínu“. Á myndinni mátti einnig sjá loftvörpur fljúga frá rússnesku hlið myndarinnar í átt að konu og barni á úkraínsku hliðinni.
Myndin hafði afdrifaríkar afleiðingar. Þegar kennari stúlkunnar sá myndina hringdi hann strax í lögregluna. Degi síðar var lögreglan og barnavernd komin í málið og á nú faðir stúlkunnar, sem er einstæður, yfir höfði sér fangelsisvist og hefur stúlkunni verið komið fyrir á munaðarleysingjahæli.
Faðirinn er sakaður um að hafa gert lítið úr rússneska hernum og fyrir að hafa brugðist dóttur sinni sem uppalandi.
Faðir stúlkunnar. Alexey Moskalev, er einstæður og starfaði við fuglarækt, en móðir stúlkunnar er ekki inn í myndinni.
Það var í apríl á síðasta ári sem þessi örlagaríki tími í myndmennt fór fram.
Alexey sagði í samtali við fjölmiðla:
„Myndmenntakennarinn hótaði dóttur minni strax og svo þegar lögreglumenn komu, að bíða eftir Masha [stúlkunni] við inngang skólann og báðu alla nemendur um að segja til nafns, vissi dóttir mín strax hvað væri í gangi. Henni tókst að lauma sér í gegn, hún gaf upp rangt nafn. Hún kom á harðahlaupum og móð heim og sagði – Pabbi lögreglan náði mér næstum – Ég teiknaði mynd. Hún var hrædd og ég lofaði henni að daginn eftir myndi ég fylgja henni í skólann og bíða þar til hún væri búin í öllum tímum.“
Alexey mætti svo með dóttur sinni í skólann og beið eftir henni á ganginum. Þegar skólastjórinn hafi svo séð hann þar hafi verið hringt á lögregluna sem mætti á svæðið ásamt fulltrúm frá barnavernd.
Þar hafi Alexey verið yfirheyrður og svo kærður fyrir að gera lítið úr rússneska hernum fyrir færslur og athugasemdir sem hann hefði látið falla á samfélagsmiðlum. Hann var svo sektaður um 32 þúsund krónur fyrir athugasemd þar sem hann hafði skrifað: „Rússneski herinn. Nauðgarinn við hliðina á okkur.“
Um kvöldið hafi Masha sagt föður sínum að hún óttaðist að mæta í skólann. Hann hafi fullvissað hana um að það væri ekkert að óttast og hún hafi mætt. Skömmu síðar hafi Alexey fengið símtal frá einhverjum í skólanum og tilkynnt að hann yrði að koma þangað undir eins. Lögreglan hefði mætt og tekið Möshu úr skólanum.
„Ég klæddi mig og flýtti mér þangað. Ég mætti þar lögreglumönnum og spurði – Hvar er dóttir mín? Þeir svöruðu að það væri verið að yfirheyra hana.“
Honum hafi í kjölfarið verið sagt að hann væri að ala dóttur sína upp með röngum hætti og dóttir hans yrði tekin af honum og hann settur í fangelsi.
Masha hafi eftir þetta hætt að mæta í skólann. Svo á gamlársdag hafi lögreglan mætt til þeirra með leitarheimild.
Þeir hafi rústað heimilinu og stolið þaðan öllu lausafé – sparifé fjölskyldunnar. Þeir hafi tekið mynd af teikningu Möshu og svo fjarlægt hana af heimilinu. Alexey hafi verið hnepptur í varðhald og þar hafi hann verið beittur ofbeldi og svo yfirheyrðum klukkustundunum saman á meðan rússneski þjóðsöngurinn var spilaður á hæsta hljóðstyrk.
Lögreglan hafi svo sýnt Alexey athugasemd sem dóttir hans hafði skrifað á samfélagsmiðlum þar sem hún talaði um börn sem væri að láta lífið í Úkraínu.
Alexey var svo sleppt og fékk hann dóttur sína aftur til baka. Hann á þó yfir höfði sér allt að þriggja ára fangelsi. Hann óttast hvað verði um dóttur sína, verði hann sakfelldur. Hann átti að mæta til lögreglunnar þann 9. janúar en gerði það ekki. Lögreglan hafði upp á honum og er hann nú í haldi og dóttir hans komin á munaðarleysingjahæli þar sem hún mun vera þar til ákvörðun hefur verið tekin í máli föður hennar eða þar til móðir hennar finnst.