Risastór svarthol knýja því hugsanlega útþenslu alheimsins ef marka má niðurstöður nýrrar rannsóknar.
Með því að bera saman ofurmassamikil svarthol á níu milljarða ára tímabili fundu stjörnufræðingar vísbendingu um að þessi risastóru skrímsli geti verið uppspretta hulduorku sem er dularfullt efni sem er 68% af hinum þekkta alheimi og veldur því að hann þenst út en þessi þensla verður sífellt hraðari.
LiveScience skýrir frá þessu og segir að rannsóknin hafi verið birt í The Astrophysical Journal og The Astrophysical Journal Letters.
Haft er eftir Chris Pearson, stjarneðlisfræðingi við Rutherford Appleton Laboratory, að ef þessi kenning reynist rétt, þá muni hún bylta heimsmyndarfræðinni því þá verði loksins komin lausna á uppruna hulduorku sem hafi valdið vísindamönnum heilabrotum í rúmlega 20 ár.