Samfélagsmiðlastjarnan og fyrirsætan Ivana Knoll svaraði nýlega spurningum um sig og hvort hún hefði áhuga á því að stofna aðgang á OnlyFans.
Knoll varð heimsfræg á HM í Katar fyrir áramót. Þar studdi hún króatíska landsliðið dátt, en hún er fyrrum ungfrú Króatía.
Eftir HM er Knoll komin með 3,5 milljónir fylgjenda á Instagram.
Einhverjir aðdáendur vilja sjá Knoll á OnlyFans og var hún spurð út í þetta.
„Nei, ég mun ekki stofna aðgang á OnlyFans,“ sagði Knoll, sem er greinilega mjög ákveðin í því að fara ekki þangað inn.
„Ég dæmi ekki þá sem eru þar. Mér líkar hins vegar við fyrirsætustörf á samfélagsmiðlum og langar að halda mig inn í íþróttunum frekar.“
Hún svaraði einnig spurningum um líkama sinn.
„Líkami minn er alveg náttúrulegur. Varirnar mínar eru það líka. Mamma mín er meira að segja með stærri.
Ég hef alltaf verið grönn en með þyngd á góðum stöðum. Ég hef ekkert æft af viti síðan á HM.“