Luke Shaw, leikmaður Manchester United, segir að leikmenn liðsins hafi varla fagnað sigrinum í deildabikarnum.
Man Utd vann 2-0 sigur á Newcastle á sunnudag og var að vinna sinn fyrsta titil í sex ár.
Rauðu Djöflarnir eiga erfið verkefni framundan í bæði Evrópudeild og deildakeppni en næsti leikurinn er gegn West Ham á morgun.
Leikmennirnir vita vel af því og það var ekki djammað fram á miðja nótt til að fagna þessum titli.
,,Við fáum enga frídaga. Við fögnuðum sigrinum ekki mikið og ég tel að allir séu að undirbúa sig fyrir næsta leik,“ sagði Shaw.
,,Við erum að tala um keppni sem við viljum spila áfram í. Við vitum að verkefnið gegn West Ham verður erfitt.„