Svín með gapandi sár – Verkamenn í Brasilíu vinna við frumstæðar aðstæður
Þýski sælgætisrisinn Haribo hefur heitið því að rannsaka til hlítar hvernig á því stendur að börn vinni óbeint fyrir fyrirtækið. Þá mega dýr þola slæma meðferð áður en þeim er slátrað og afurðir unnar úr þeim sem notaðar eru í vörur frá Haribo.
Þetta leiðir þýsk heimildarþáttaröð, Markencheck, í ljós en á dögunum var sjónum beint að Haribo sem framleiðir meðal annars þekkta gúmmíbangsa.
Í þættinum kom meðal annars fram að eitt mikilvægasta hráefnið í sælgætinu eigi rætur sínar að rekja til Brasilíu. Carnauba-vaxið, sem gefur sælgætinu glansandi útlit, er unnið úr laufum pálmatrjáa sem unnin eru af verkamönnum í norðausturhluta Brasilíu.
Í þættinum kom fram að verkamennirnir vinni við aðstæður sem líkja mætti við þrældóm og þá væru dæmi þess að börn undir lögaldri fengjust við þetta. Til að bæta gráu ofan á svart sofa verkamennirnir undir berum himni eða í bílum og hafa ekki viðunandi aðgang að hreinlætisaðstöðu, salerni eða hreinu vatni. Þá fá þeir greitt sem nemur 1.500 krónum á dag.
Í heimildarmyndinni var einnig varpað ljósi á slæma meðferð sem dýr mega þola til þess eins að sælgætið komist í munn neytenda. Gelatín er hlaupkennt efni sem verður til við hitun kollagenþráða úr sinum og beinum spendýra, svína þar á meðal.
Í þættinum birtust myndskeið frá dýraverndunarsinnum sem sýndu aðbúnað svína á þýskum svínabúum. Þar mátti sjá dýrin hafast við í mjög þröngum svínastíum þar sem hreinlæti var verulega ábótavant. Á einhverjum mátti sjá gapandi sár og þá höfðust þau við í eigin skít. Svínabúin og fyrirtæki þeim tengd voru sögð sjá Haribo – og fleiri fyrirtækjum – fyrir hráefni, gelatíni þar á meðal.
Tekið er fram að ekki allt hlaup frá Haribo innihaldi gelatín úr svínum og á við um sælgæti sem framleitt er í Tyrklandi. Það er framleitt úr nautgripum.
Forsvarsmenn Haribo hafa heitið því að rannsaka málið og segjast líta málið alvarlegum augum.