Jón Björn Hákonarson, sagði upp störfum sem bæjarstjóri í Fjarðabyggð á dögunum og í kjölfarið var í fjölmiðlum vakin athygli á því að Jón Björn og systkini hans ættu óskráð sumarhús í Fannardal í Norðfjarðarsveit sem ekki hefðu verið greidd lögbundin fasteignagjöld af.
Fram kom að árlegur fasteignaskattur í Fjarðarbyggð af sumarhúsum sem þeim sem deilt var um í málinu væru um 20 þúsund krónur og höfðu húsin svo verið skráð í fasteignaskrá fljótlega eftir að málið komst upp.
Jón Björn hafnaði því að uppsögn hans hefði nokkuð með þetta mál að gera.
Nú hefur bróðir Jóns Björns, Guðröður Hákonarson, stigið fram og útskýrt málið og tæplega tuttugu ára forsögu þess. Þar greinir hann frá áratugalöngum deilum sínum við Fjarðabyggð vegna vatnsréttinda á lóðinni, deilu sem enn er ekki lokið. Guðröður telur að tengsl hans við Jón Björn hafi frekar gert honum erfiðara fyrir heldur en annað.
Guðröður skrifar í pistli sem birtist hjá Vísi:
„Rétt skal vera rétt en ekki ósannindi. Þannig er málið vegna umræðu þeirrar sem nú flýgur og snýr að umræðu um eign bróður míns, Jóns Björns Hákonarsonar, á 28 fermetra bjálkakofa í landi Fannardals í Norðfirði. Sú umræða er að stóru leyti byggð á þvælu og útúr snúningum í fjölmiðlum og runnin undan rifjum fólks sem lengi hefur haft horn í síðu bróður míns og ekki síst núna eftir sveitarstjórnarkosningar þegar hægri öflin komust ekki í meirihluta annað kjörtímabilið í röð með tilheyrandi vonbrigðum enda hafa þau löngum talið að það sé náttúrulögmál að þau séu við völd hverju sinni.“
Guðröður útskýrir málið. Það var hann sem var eigandi lögbýlisins Fannardals um áratugaskeið. Hvert systkina hans hafi fengið úr jörðinni eina lóð vegna erfðamála, 1 hektara hvert.
„Frá þeim tíma hefur tímalína þessa máls verið löng og leiðinleg“
Guðröður rekur að árið 2006 hafi systir hans sótt um byggingarleyfi á sinni lóð en ekki fengið. Var synjunin byggð á því að enn væri unnið að deiliskipulagi á svæðinu.
Guðröður sjálfur hafi þá, sem eigandi lögbýlisins Fannardals, sótt um bráðabirgðabyggingaleyfi til að reisa þar þrjú hús. Lög kveði á um að það megi reisa þrjú hús á lögbýli án skipulags. Inni í þessu bráðabirgðaleyfi hafi húns Jóns Björns verið.
Árið síðar hafi verið farið í að gera deiliskipulag og hafi Guðröður kostað það sjálfur til. Fjarðarbyggð hafi á þeim tíma ekki fengið fólk með réttindi til að teikna skipulag heldur hafi byggingarfulltrúi gert slíkt.
Árið 2008 hafi enn verið að vinna að skipulaginu og þá hafi komið í ljós að búið var að teikna inn á jörð Guðröðar 40 hektara spildu sem vatnsverndarsvæði. Það hafi verið gert án samráðs við hann.
„Án minnar vitundar, samþykkis eða heimildar. Þetta var gert af sveitarfélaginu og hefst hér saga valdníðslu og þeim órétti sem ég tel mig hafa verið beittan í þessu máli.“
Guðröður telur að Fjarðarbyggð hefði í þessu tilviki þurft að þinglýsa kvöð á jörð hans til að mega gera þetta að vatnsverndarsvæði.
„Vegna borholu sem er ekki í mínu landi, heldur var jörðin mín skilgreind sem vatnsupptökusvæði fyrir borholu Fjarðabyggðar án minnar vitundar eða heimildar sem þinglýsts eiganda að þessari jörð. Þetta var gert 2004 og þá sótti Fjarðabyggð ekki um heimild til Orkustofnunar til nýtingar á vatninu og gerir það ekki fyrr en 2012 þegar ég er kominn í málaferli við sveitarfélagið vegna þessara kvaða á jörðinni. Þannig að Fjarðabyggð tók í leyfisleysi öll árin frá 2004 til 2012 neysluvatn úr minni jörð. Þau málaferli standa enn og snúast um að hver á vatnsréttindin fyrir þessa borholu og hvernig skuli greiða afgjald fyrir það.“
Guðröður hafi reynt að leita til embættismanna sveitarfélagsins eftir sáttum en það ekkert gengið. Guðröður ákvað að hann myndi ekki sækja um annað byggingarleyfi fyrr en búið væri að koma vatnsréttarmálunum í eðlilegan farveg. Það hafi hingað til kostað hann um 10 milljónir í lögfræðikostnað að berjast við sveitarfélagið og ágreiningnum enn ekki lokið.
Árið 2018 hafi Guðröður svo óskað eftir því að skiplagið yrði tekið upp og auglýst að nýju. Þegar það mál var komið í ferli hafi hann óskað eftir því að stofna áðurnefndar lóðir formlega. Þegar skipulagið var samþykkt vék Jón Björn af fundinum, eins og hann geri alltaf þegar mál tengd honum séu til umfjöllunar.
„Ég tel mig hafa mátt gjalda fyrir stöðu bróður míns hjá sveitarfélaginu í gegnum tíðina, hef ég vegna rekstrar míns alls farið með 8 mál á undanförnum árum fyrir sveitarfélagið þar sem hann hefur alltaf vikið sæti og ekki tekið neinn þátt í umfjöllun þegar um þau hefur verið fjallað eins og lög gera ráð fyrir. Af þessum 8 málum hefur 7 þeirra verið hafnað. Þó ég hafi oft skammað Jón Björn og ekki verið sammála honum í pólitík þá á hann ekki gjalda fyrir mínar syndir né getur hann beitt sér í málefnum skyldra. Hann gat aldrei sótt um deiliskipulag þar sem hann var ekki eigandi Fannardals og hefur aldrei verið. Meðan ekki var gildandi deiliskipulag og samþykktar lóðir, samkvæmt því, er ekki hægt að fá lokaúttekt á hús og þar af leiðandi ekki hægt að leggja á það fasteignagjöld.
Mér er kunnugt um að sá sem gerir þessa athugasemd nú til Fjarðabyggðar er Hákon Björnsson nágranni minn á Hólum sem sjálfur er í deilu við Fjarðabyggð vegna fasteignagjalda. Það er af hinu góða að hann horfi til að öll leyfi séu í lagi og mættu þau vera það hjá fleirum. En engu að síður er það mín skoðun að þegar menn fara af stað í slík mál þá skulu allar staðreyndir skoðaðar, sér í lagi ef tilgangurinn er kannski aðallega að sverta mannorð fólks í almennri umræðu. Betra er þá að þeirri atlögu sé beint á réttan aðila. En kannski helgar tilgangurinn meðalið hjá sumum.
Að lokum vill ég að það komi fram að ég seldi jörðina Fannardal árið 2022 en í þeim samningum er minn réttur til hluta af kaldavatnsréttindum Fannardals tilgreindur og er málið enn í ferli gagnvart Fjarðabyggð.“