Íslenski landsliðsmaðurinn Jóhann Berg Guðmundsson, spilaði rúman stundarfjórðung fyrir félagslið sitt, enska B-deildar liðið Burnley er liðið gerði 1-1 jafntefli gegn Millwall í kvöld.
Burnley var fyrir leikinn í efsta sæti ensku B-deildarinnar og strákarnir hans Vincent Kompany komust yfir í leiknum með marki frá Ashley Barnes á 51. mínútu.
Allt virtist stefna í enn einn sigur Burnley en á 85. mínútu sá Tom Bradshaw, leikmaður Millwall til þess að sú stefna tók U-beygju.
Lokatölur á The Den í London, 1-1 jafntefli. Burnley situr sem fyrr á toppi ensku B-deildarinnar með 73 stig og 12 stiga forskot á Sheffield United sem situr í 2. sæti en á leik til góða.
Jóhann Berg kom inn á sem varamaður á 73. mínútu í liði Burnley í leiknum.