Nokkrir fjölmiðlar skýrðu frá þessu í gærmorgun, þar á meðal sænska Expressen, bandaríska Yahoo News, úkraínska Kyiv Independent og fjöldi þýskra útvarpsstöðva. Blaðamenn þessara miðla eru aðilar að alþjóðlegum hópi rannsóknarblaðamanna sem komst yfir þessi skjöl.
Kyiv Independent birti áætlun Rússa lið fyrir lið á heimasíðu sinni. Þar er því lýst í smáatriðum hvernig á að innlima hina ýmsu geira hvítrússneska samfélagsins inn í Rússneska sambandsríkið.
2030 á að vera til Sameinuð ríki Rússlands og Belarús (Hvíta Rússland) eftir því sem segir í skjölunum. Kyiv Independent segir að ríkin eigi að fara sameiginlega með stjórn herja landanna.
Einnig á að taka upp sameiginlegan gjaldmiðil og toll- og skattasvæði. Rússland á einnig að fá stjórn yfir upplýsingastreymi í Hvíta-Rússlandi. Rússneska á einnig að verða hið opinbera tungumál í Hvíta-Rússlandi.
Michael Carpenter, fulltrúi Bandaríkjanna hjá Öryggis- og samvinnustofnun Bandaríkjanna, sagði í samtali við Yahoo News að Rússar hafi sömu fyrirætlanir varðandi Hvíta-Rússland og Úkraínu. „Munurinn er að í Hvíta-Rússlandi er ætlunin að nota þvinganir frekar en stríð. Lokamarkmiðið er full innlimun,“ sagði hann.
Expressen segir að Rússar hafi gert svipaðar áætlanir fyrir Eistland, Lettland og Litháen auk Moldóvu og Úkraínu.
Rússnesk stjórnvöld hafa ekki tjáð sig um skjölin.