Javier Marcos rekur litla gardínubúð í Fort Pienc í Barcelona. Þegar eina konan, sem vinnur hjá honum var að láta af störfum, vildi hann ráða aðra konu í starfið að sögn The Guardian.
Hann sagðist ekki hafa viljað mismuna fólki og hafi í raun viljað bjóða upp á atvinnutækifæri fyrir þjóðfélagshóp sem á í erfiðleikum með að finna vinnu. Hann benti einnig á að flestir viðskiptavinir hans eru konur.
Hann fjarlægði auglýsinguna af vefsíðunni eftir að eftirlitsmenn atvinnumálayfirvalda vöruðu hann við og sögðu að hann ætti sekt yfir höfði sér. Hann var síðan kærður fyrir að hafa mismunað fólk á grunni kynferðis og aldurs.
Aðeins er heimilt að auglýsa eftir fólki af ákveðnu kyni til starfa þegar starfið er þess eðlis að annað kynið verður að sinna því, til dæmis sem vörður í búningsklefa karla eða kvenna í sundlaug.