fbpx
Sunnudagur 15.desember 2024
Pressan

Unglingur sakfelldur fyrir manndráp eftir að flugeldar urðu gamalli konu að bana

Pressan
Föstudaginn 24. febrúar 2023 21:00

Myndin tengist fréttinni ekki beint.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrir viku var Kai Cooper, 19 ára, fundinn sekur um að hafa orðið Josephine Smith, 88 ára, að bana þann 28. október 2021. Þá kom upp eldur í húsi Smith eftir að flugeldar voru settir inn um bréfalúguna. Talið er að Smith hafi verið sofandi þegar þetta gerðist.

Sky News segir að Cooper hafi einnig verið fundinn sekur um íkveikju.

Saksóknari sagði fyrir dómi að Cooper hafi verið með yngri pilti, sem er nú 17 ára, þegar þeir komu inn í flugeldaverslun í Romford, sem er í austurhluta Lundúna, fyrr um kvöldið. Hann sagði verslunareigandanum að hann vantaði „eitthvað sem færi langt og hratt“. Hann sagði unnustu sinni að hann ætlaði að reyna að fá flugelda til að skjóta á fólk, hann ætlaði að hrella fólk þetta kvöld.

Eftir að hafa keypt flugelda og kveikjara gengu Cooper og vinur hans að Queens Park Road í Harold Wood en þar bjó Smith. Á leiðinni kveiktu þeir í flugeldum og beindum þeim að gangandi vegfarendum.

Þegar þeir stóðu við hús Smith tók yngri pilturinn flugelda og fór með að húsi Smith og sett inn í gegnum bréfalúguna. Tvær sprengingar urðu fyrir innan og eldur braust út og barst um allt húsið.

Þegar slökkviliðið kom á vettvang var húsið fullt af reyk og Smith fannst látin í svefnherbergi sínu. Krufning leiddi í ljós að hún lést af völdum reykeitrunar.

Enginn ágreiningur var um það fyrir dómi að piltarnir hefðu keypt flugelda og kveikjara og að Cooper hefði greitt fyrir vörurnar né að yngri pilturinn hefði sett flugeldana inn um bréfalúguna.

Kviðdómur þurfti að taka afstöðu til hvort Cooper hefði átt hlut að íkveikjunni með því að hvetja hinn piltinn og aðstoða hann við að setja flugeldana inn um bréfalúguna. Sá yngri játaði að hafa orðið Smith að bana.

Unnusta Cooper sagði að hann hefði hlegið þegar yngri pilturinn fór að húsi Smith. Saksóknari sagði að það væri mat ákæruvaldsins að pilturinn hefði ekki sett flugeldana inn um bréfalúguna ef Cooper hefði ekki stungið upp á því.

Dómari ákveður refsingu piltanna síðar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Dýrahirðirinn gerði afdrifarík mistök

Dýrahirðirinn gerði afdrifarík mistök
Pressan
Fyrir 2 dögum

Myndband sýnir björgun fanga úr fangelsi í Sýrlandi – Hafði verið fjóra mánuði í gluggalausum klefa

Myndband sýnir björgun fanga úr fangelsi í Sýrlandi – Hafði verið fjóra mánuði í gluggalausum klefa
Pressan
Fyrir 3 dögum

Víðtæk leit að búum „morðgeitunga“ – Sáust í Evrópu í fyrsta sinn

Víðtæk leit að búum „morðgeitunga“ – Sáust í Evrópu í fyrsta sinn
Pressan
Fyrir 3 dögum

Stefnulýsing Mangione birt – „Ég biðst afsökunar á þeim erfiðleikum og þjáningum sem ég hef valdið en þetta þurfti að gerast“

Stefnulýsing Mangione birt – „Ég biðst afsökunar á þeim erfiðleikum og þjáningum sem ég hef valdið en þetta þurfti að gerast“
Pressan
Fyrir 4 dögum

„Undraland vetrarins“ sagt vera hrein blekking

„Undraland vetrarins“ sagt vera hrein blekking
Pressan
Fyrir 4 dögum

Líf hjónanna breyttist mjög þegar dóttir þeirra gekk í hjónaband með Assad

Líf hjónanna breyttist mjög þegar dóttir þeirra gekk í hjónaband með Assad