fbpx
Sunnudagur 15.desember 2024
Eyjan

Skiptum lokið í félagi Margrétar – Ekki hægt að greiða lýstar kröfur upp á 228 milljónir

Eyjan
Laugardaginn 18. febrúar 2023 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Skiptum er lokið hjá félaginu JL Holding ehf., sem var í meirihlutaeigu Margrétar Ásgeirsdóttur fjárfestis, en félagið var úrskurðað gjaldþrota í nóvember.

Lýstar kröfur í þrotabúið voru rétt tæpar 228 milljónir en engar eignir fundust í búinu svo skiptum var lokið án þess að greiðsla fengist upp í lýstar kröfur.

Félagið var stofnað árið 2014 utan um gistirekstur í JL-húsinu við Hringbraut – hótelið Oddson og veitingastaðinn Bazaar – undir forystu tvíburabræðranna Arnars og Bjarka Gunnlaugssona auk Margrétar. Um var að ræða 800 milljón króna fjárfestingu en Margrét átti 50% hlut í fyrirtækinu til að byrja með en sá hlutur nam 70% undir það síðasta.

Hótelið var opnað í maí 2016 en um var að ræða hótel með andrúmslofts farfuglaheimilis eins og komist var að orði við opnunina. Reksturinn gekk þó ekki sem skyldi og í byrjun árs 2018 lokaði veitingastaðurinn Bazaar og hótelinu var skellt í lás í september 2018. Þar hófst svo að nýju rekstur undir nafninu Circle hostel og var Ásgeir Mogensen, sonur Margrétar og Skúla Mogensen, framkvæmdastjóri Circle um tíma.

Í janúar á síðasta ári var greint frá því að nauðungarsala væri fyrirhuguð á þeim hlutum fasteignarinnar sem voru í eigu JL Holding. Stjórnarformaður félagsins, Einar Páll Tamimi, kvaðst þó bjartsýnn á að samningar myndu nást við kröfuhafa.  Það gekk þó ekki eftir og eignaðist Íslandsbanki fasteignirnar á nauðungarsölu í kjölfarið.

Þá var greint frá því í september að Þorpið vistfélag hefði keypt eignarhlutana af Íslandsbanka sem og aðra hluta hússins sem voru í eigu Myndlistaskólans í Reykjavík og ráðgerðir að útbúa rúmgóðar miðborgaríbúðir í húsnæðinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Þrír nýir stjórnendur hjá Lyfju

Þrír nýir stjórnendur hjá Lyfju
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Ágúst Borgþór skrifar: Saklaus maður sakaður mánuðum saman um svívirðileg kynferðisbrot

Ágúst Borgþór skrifar: Saklaus maður sakaður mánuðum saman um svívirðileg kynferðisbrot
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Ólafur Ágúst Hraundal skrifar: Er Vernd einkarekið fangelsi í dulargervi áfangaheimilis?

Ólafur Ágúst Hraundal skrifar: Er Vernd einkarekið fangelsi í dulargervi áfangaheimilis?
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Lífleg útgáfa hjá sagnfræðingum í Háskóla Íslands

Lífleg útgáfa hjá sagnfræðingum í Háskóla Íslands
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þórdís Kolbrún svarar gagnrýni Hannesar – „Það er ekki bæði haldið og sleppt í þessu“

Þórdís Kolbrún svarar gagnrýni Hannesar – „Það er ekki bæði haldið og sleppt í þessu“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Efins um að Valkyrjustjórnin verði að veruleika – „Eins og við séum að horfa á eitthvað leikrit“

Efins um að Valkyrjustjórnin verði að veruleika – „Eins og við séum að horfa á eitthvað leikrit“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Skiptar skoðanir á hver fari í raun frjálslega með sannleikann – „Þetta er ekki boðlegur málflutningur hjá þér“

Skiptar skoðanir á hver fari í raun frjálslega með sannleikann – „Þetta er ekki boðlegur málflutningur hjá þér“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þetta ætlar Áslaug Arna að gera í desember

Þetta ætlar Áslaug Arna að gera í desember