fbpx
Mánudagur 06.janúar 2025
Pressan

Dómi snúið við – Látinn laus eftir að hafa setið saklaus í fangelsi í 28 ár

Pressan
Fimmtudaginn 16. febrúar 2023 22:00

Lamar Johnson. Skjáskot:KFVS12

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í október 1994 var Marcus Boyd skotinn til bana á veröndinni heima hjá sér í St Louis í Missouri. Lamar Johnson, sem nú er fimmtugur, var fundinn sekur um morðið og dæmdur í ævilangt fangelsi.  En nýlega var dómnum snúið við og hann sýknaður eftir að hafa setið í fangelsi í 28 ár.

Sky News skýrir frá þessu og segir að sýknudómurinn hafi byggst á framburði lykilvitnis sem dró framburð sinn til baka og á framburði fanga sem játaði að vera annar af þeim tveimur mönnum sem skutu Boyd til bana.

David Mason, dómari, sagði að til þess að hægt væri að sýkna Johnson þyrftu að vera „traust gögn um sakleysi hans, sönnunargögn sem væru svo traust að þau stæðust kröfur um að vera skýr og sannfærandi“.

Johnson var að vonum mjög ánægður þegar hann gekk út úr dómhúsinu eftir dómsuppkvaðninguna og þakkaði öllum þeim sem unnu að máli hans fyrir sem og dómaranum. Hann sagði það vera ótrúlegt að vera loks frjáls maður.

Lögmenn hans sögðu að hann ætli nú að styrkja samband sitt við fjölskyldu sína og njóta hluta sem honum hafi verið meinað um næstum allt fullorðinslíf hans. „Dagurinn í dag færir okkur hamingju en ekkert getur endurheimt allt það sem ríkið stal frá honum. Ekkert færir honum aftur þá tæpu þrjá áratugi sem hann var aðskilinn frá dætrum sínum og fjölskyldu,“ sögðu lögmenn hans.

Þeir sögðu að gögnin sem sönnuðu sakleysi hans hafi verið til staðar þegar réttað var yfir honum í upphafi en hafi verið leynt eða hunsuð af þeim sem töldu líf tveggja svartra manna einskis virði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Maðurinn í Teslunni: Konan fór frá honum um jólin vegna gruns um framhjáhald

Maðurinn í Teslunni: Konan fór frá honum um jólin vegna gruns um framhjáhald
Pressan
Fyrir 2 dögum

Nóbelsverðlaunahafi segir auknar líkur á að gervigreind útrými mannkyninu

Nóbelsverðlaunahafi segir auknar líkur á að gervigreind útrými mannkyninu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Þetta hefur aspasspákonan að segja um árið 2025

Þetta hefur aspasspákonan að segja um árið 2025
Pressan
Fyrir 3 dögum

Skoskur grínisti sturlaðist á bandarískum flugvelli

Skoskur grínisti sturlaðist á bandarískum flugvelli
Pressan
Fyrir 4 dögum

Árásarmaðurinn fæddur og uppalinn í Bandaríkjunum og þjónaði í hernum – Lögregla skoðar möguleg tengsl við ISIS

Árásarmaðurinn fæddur og uppalinn í Bandaríkjunum og þjónaði í hernum – Lögregla skoðar möguleg tengsl við ISIS
Pressan
Fyrir 4 dögum

Dularfulla brúin í Skotlandi – Af hverju stökkva hundar í dauðann þegar þeir koma að henni?

Dularfulla brúin í Skotlandi – Af hverju stökkva hundar í dauðann þegar þeir koma að henni?