Verkfall hjá Eflingu hófst á hádegi í dag þegar 70 vörubílstjórar hjá Samskipum, Skeljungi og Olíudreifingu, og 500 starfsmenn Berjaya-hótela og Edition lögðu niður störf. Fyrir voru um 300 félagar Eflingar á Íslandshótelum í verkfalli.
Verkfallið mun standa þangað til því hefur verið aflýst af félaginu. Baráttu- og upplýsingafundur Eflingar hófst kl. 12 í Norðurljósasal Hörpu og stendur til kl. 16. Sáttafundur stendur yfir milli aðila, en Ástráður Haraldsson, settur ríkissáttasemjari í deilunni, boðaði aðila til fundar kl. 9 í morgun og hófst hann að nýju eftir hádegishlé.
Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, sagðist í morgun útiloka samninga við Eflingu á öðrum grunni en við önnur stéttarfélög.
„Ég sé fyrir mér að verkföll muni lama íslenskt samfélag að öllu leyti fyrir eða eftir helgi. Hér verður komið upp ófremdarástand sem mun snerta alla Íslendinga með beinum hætti, annars vegar í gegnum verkfall Olíudreifingar og hins vegar vegna afleiddra áhrifa þess á samfélagið. Samgöngur lamast og rekstur fyrirtækja lamast. Þúsundir ferðalanga verða á vergangi og geta ekki innritað sig á hótel og þar fram eftir götunum.“
Landsmenn hömstruðu bensín
Landsmenn bjuggu sig margir fyrir verkfall og flykktust í dag og gær á bensínstöðvar til að fylla á bíla sína og brúsa. Þórður Guðjónsson forstjóri Skeljungs segir í viðtali við Vísir að verkfallið hafi strax gríðarleg áhrif á viðskiptavini félagsins eins og bensínstöðvar, verktaka, rútufyrirtæki og flugvelli. Það styttist í að bensín klárist á fyrstu bensínstöðvunum.
N1 hefur þegar lokað þremur bensínstöðvum: við Skógarlind í Kópavogi, Vallarheiði í Njarðvík og á Flúðum. Hinrik Örn Bjarnason, framkvæmdastjóri N1, segir í samtali við Vísir að fyrirtækið bíði svara frá Eflingu um hvernig þjónusta eigi þá sem hafa fengið undanþágubeiðnir samþykktar.
„Til að mynda björgunarsveitir, lögregla og slíkir aðilar eru komnir með undanþágur en við viljum hafa skýra línu frá Eflingu hvernig við eigum svo að þjónusta þá. Því auðvitað þarf að koma eldsneyti á tankana okkar og við þurfum svo að geta afgreitt þá. Þannig það þarf að fínstilla þetta en það eru allir örugglega að reyna að gera sitt besta í þessu og brjálað að gera hjá öllum, þannig þetta vonandi skýrist í dag.“
Segist hann vona að verkfallið standi ekki í langan tíma, en á sama tíma búast við að það geti varað í einhvern tíma.
Jónas Jónasson, framkvæmdastjóri Benchmark Genetics, fiskeldisfyrirtækis á Suðurnesjum, óttast milljarðatap. Í samtali við RÚV kemur fram að vegna verkfallsins verður mögulega ekki hægt að flytja súrefnistanka að eldistönkum og eldisfiskar gætu því drepist. Efling hefur ekki svarað undanþágubeiðni fagfélags um fiskeldi.
„Ársveltan hjá okkur er í kringum fjórir milljarðar, og ef við missum þetta niður þá er ófyrirséð um áhrif bara næstu árin.“
Samþykktu 70 undanþágubeiðnir
Á þriðjudagskvöld samþykkti undanþágunefnd vegna verkfallsaðgerða Eflingar 70 ótímabundnar undanþágur til allra aðila sem sóttu um undanþágur vegna almannaöryggis. Meðal þeirra sem fengu undanþágur eru Ríkislögreglustjóri, Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins, Rauði krossinn, Strætó, Ríkisútvarpið og vetrarþjónusta Vegagerðarinnar. Þremur beiðnum var hafnað.