Domino´s á Íslandi hefur hækkað verð á pítsum á svokallaðri megaviku fyrirtækisins um hundrað krónur. Tilboðið hljóðar nú upp á 1.890 krónur. Síðasta verðhækkun fyrirtækisins á tilboðinu var síðasta sumar, upp í 1.790 krónur og féll það í grýttan jarðveg. Hækkunin nú nemur rúmum 5,5 prósentum en síðastliðna átta mánuði hefur verið hækkað um tæplega 12 prósent.
Það er óhætt að fullyrða að Megaviku-tilboðið sé vinsælasta tilboð landsins og það sem allir hafa skoðun á. Rúmir tveir áratugir eru síðan Megavikan hóf göngu sína en þá stóð Þórarinn Ævarsson, sem nú ert betur þekktur fyrir aðkomu sína að IKEA og Spaðanum, í stafni fyrirtækisins. Árið 2001 kostaði pizza af matseðli 1.000 krónur á Mega-viku og naut tilboðsvikan mikilla vinsælda. Sé þúsundkallinn frá árinu 2001 núvirtur sést að hann stendur í rúmum 2.800 krónum í dag.
Domino´s hefur því haldið að sér höndum varðandi verðhækkanir á tilboðinu vinsæla og skal engan undra enda vekja verðhækkanir hjá Domino´s yfirleitt mikil viðbrögð neytenda og gildir það ekki bara um verðhækkunina. Þannig tók fyrirtækið skrefið og hækkaði þriðjudagstilboð sitt úr 1.000 krónum og í 1.100 krónur í október 2021 og vakti það sömuleiðis gríðarleg viðbrögð. Þá hafði tilboðið verið hið sama í krónum talið frá því að þriðjudagstilboðið hófst árið 2010.
Íslendingar æfir yfir verðhækkun í Megaviku – „Ekkert Mega neitt við þetta verð lengur“
Eins og áður segir hækkaði Domino´s verðið á Megavikunni úr 1.690 krónum og upp í 1.790 krónur um mitt síðasta sumar. Í byrjun árs var svo tilkynnt að þriðjudagstilboð fyrirtækisins hefði hækkað úr 1.100 krónum og upp í 1.200 krónur og var ástæðan sögð hækkanir á launum og innkaupum og að um afar krefjandi tíma væri að ræða í rekstrarsögu Dominos.
Í samtali við Vísir þann 3. janúar sagði Magnús Hafliðason, forstjóri Dominos, að ekki væri hægt að útiloka verðhækkanir á Megavikunni og að óvarlegt væri að fullyrða nokkuð um það. Sú verðhækkun hefur nú raungerst.