fbpx
Sunnudagur 15.desember 2024
Eyjan

Efling boðar fleiri verkföll

Eyjan
Mánudaginn 13. febrúar 2023 13:06

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar. Mynd/Ernir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samninganefnd Eflingar hefur samþykkt þrjár nýjar verkfallsboðanir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.  Boðanirnar eru eftirfarandi:

  • Verkfall á öllum gistiheimilum og hótelum á félagssvæði Eflingar. Þar undir falla hótelkeðjurnar Centerhotels og Keahótels, auk fjölda annarra hótela og gistihúsa. Áætlaður fjöldi er um sex hundrað manns. Með þessari vinnustöðvun yrðu öll störf undir kjarasamningum Eflingar á hótelum komin í verkfall.
  • Verkfall hjá öryggisvörslufyrirtækjum. Undir boðunina falla fyrirtækin Securitas og Öryggismiðstöð Íslands, auk smærri fyrirtækja. Um er að ræða um fjögur hundruð manns.
  • Verkfall hjá ræstingafyrirtækjum. Undir boðunina falla stærstu þrifafyrirtæki landsins á borð við Sólar og Daga auk minni fyrirtækja. Áætlaður fjöldi á kjörskrá er um 650 manns.

Atkvæðagreiðslur félagsmanna um þessi verkföll hefjst á hádegi á fimmtudag og lýkur þeim kl. 18 næstkomandi mánudag.

Þrjár fyrri verkfallsboðanir voru samþykktar en á hádegi næstkomandi miðvikudag hefst verkfall olíubílstjóra. Hörður Gunnars­son, fram­kvæmda­stjóri Olíu­dreifingar, segir að á­hrifa verk­falls bíl­stjóra, sem sjá meðal annars um olíu­dreifingu, fari að gæta innan tveggja til þriggja sólar­hringa eftir að fyrir­hugað verk­fall hefst á há­degi á mið­viku­dag (Sá vef Fréttablaðsins).

„Við höfum séð með skýrum hætti í verkfallsatkvæðagreiðslum síðustu vikna að ómissandi verkafólk í öllum geirum vinnumarkaðarins á Höfuðborgarsvæðinu stendur sameinað. Krafa okkar er um sanngjarnan kjarasamning þar sem tekið er tillit til aðstæðna og samsetningar félagsmannahópsins. Ég hvet til þess að gengið verði til samninga við okkur,“ er haft eftir Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formanni Eflingar, í tilkynningu félagsins.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Þrír nýir stjórnendur hjá Lyfju

Þrír nýir stjórnendur hjá Lyfju
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Ágúst Borgþór skrifar: Saklaus maður sakaður mánuðum saman um svívirðileg kynferðisbrot

Ágúst Borgþór skrifar: Saklaus maður sakaður mánuðum saman um svívirðileg kynferðisbrot
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Ólafur Ágúst Hraundal skrifar: Er Vernd einkarekið fangelsi í dulargervi áfangaheimilis?

Ólafur Ágúst Hraundal skrifar: Er Vernd einkarekið fangelsi í dulargervi áfangaheimilis?
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Lífleg útgáfa hjá sagnfræðingum í Háskóla Íslands

Lífleg útgáfa hjá sagnfræðingum í Háskóla Íslands
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þórdís Kolbrún svarar gagnrýni Hannesar – „Það er ekki bæði haldið og sleppt í þessu“

Þórdís Kolbrún svarar gagnrýni Hannesar – „Það er ekki bæði haldið og sleppt í þessu“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Efins um að Valkyrjustjórnin verði að veruleika – „Eins og við séum að horfa á eitthvað leikrit“

Efins um að Valkyrjustjórnin verði að veruleika – „Eins og við séum að horfa á eitthvað leikrit“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Skiptar skoðanir á hver fari í raun frjálslega með sannleikann – „Þetta er ekki boðlegur málflutningur hjá þér“

Skiptar skoðanir á hver fari í raun frjálslega með sannleikann – „Þetta er ekki boðlegur málflutningur hjá þér“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þetta ætlar Áslaug Arna að gera í desember

Þetta ætlar Áslaug Arna að gera í desember