Þegar Rússar réðust inn í Úkraínu fyrir tæpu ári höfðu stjórnvöld ekki aðeins undirbúið sig undir að flytja tugi þúsunda hermanna að landamærum Úkraínu, þau höfðu einnig tekið til á Internetinu og í fjölmiðlaheiminum til að koma í veg fyrir að Rússar fái upplýsingar sem eru ekki samhljóma hinum opinberu skýringum frá Kremlverjum.
Meðal þess sem var gert var að stimpla fjölda óháðra fjölmiðla sem „erlenda útsendara“ eða einfaldlega með því að stöðva starfsemi þeirra.
En yfirvöld gerðu miklu meira en þetta samkvæmt því sem kemur fram í skjölum sem var lekið frá Roskomandzor, sem er sú stofnun sem sér um að vakta Internetið og stunda ritskoðun.
Upplýsingarnar úr þessum skjölum voru birtar í síðustu viku í nokkrum óháðum rússneskum fjölmiðlum. Þetta eru Current Time, Important Stories, Mediazona og Agentsvo. Vitnað var í upplýsingarnar í enn fleiri miðlum að sögn TV2.
Segja þessir miðlar að gögnin sýni að Roskomnadzor gegnir lykilhlutverki í eftirlitinu með Internetinu. Þetta er gert með ritskoðun, skráningu „erlendra útsendara“ og kerfisbundnu eftirliti með sögum um heilsufar Pútíns og stríðið í Úkraínu.
Það var hvítrússneskur tölvuþrjótahópur sem komst yfir gögnin í nóvember á síðasta ári. Þeir létu vestrænum fjölmiðlum þau í té sem og óháðum rússneskum blaðamönnum.
Í skjölunum kemur fram að aðalmarkmiðið með ritskoðuninni er að fjarlægja allar skaðlegar upplýsingar um Pútín af netinu. Einnig er leitað að myndum sem þykja ekki æskilegar, til dæmis þar sem Pútín er líkt við Hitler, hryðjuverkamann eða barnaníðing.