fbpx
Laugardagur 14.desember 2024
Pressan

Vara við – Útilokað að sleppa

Pressan
Sunnudaginn 19. febrúar 2023 15:00

Það er fallegt þarna en um leið lífshættulegt. Mynd:Cairns Regional Council

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á síðustu 100 árum hafa rúmlega 20 manns látist í hinni dularfullu „laug“ „The Devils Pool“ sem er í norðausturhluta Ástralíu. Laugin er vinsæll ferðamannastaður.

Dagbladet segir að heimamenn hafi lengi sagt að reimt sé við laugina vegna hinna mörgu dauðsfalla þar. En í nýrri skýrslu er ljósi varpað á hina réttu ástæðu dauðsfallanna.

Skýrslan staðfestir að náttúrulegar ástæður eru að baki dauðsföllunum.

Í lauginni, sem er vinsæll baðstaður, er fallegt heiðblátt vatn, sem rennur þar í gegn af miklu afli.

En það er mikill straumur í lauginni og ef fólk er svo óheppið að lenda í honum getur það dregið það niður á átta metra dýpi, í helli sem er þar. Þegar þangað er komið er nánast útilokað að sleppa þaðan.

Teikning af aðstæðunum. Mynd:Cairns Regional Council

 

 

 

 

 

 

 

 

Þarna niðri er mikið afl og þrýstingur sem heldur fólki niðri, ef það er svo óheppið að berast þarna niður, og gerir því nánast ókleift að synda upp á yfirborðið. Skiptir þá engu þótt fólk sé gott sundfólk, í björgunarvesti eða mjög sterkt. Það má sín ekki mikils gegn náttúruöflunum þarna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

Líf hjónanna breyttist mjög þegar dóttir þeirra gekk í hjónaband með Assad

Líf hjónanna breyttist mjög þegar dóttir þeirra gekk í hjónaband með Assad
Pressan
Fyrir 3 dögum

Skilur ekki gleðina yfir morðinu sem allir eru að tala um

Skilur ekki gleðina yfir morðinu sem allir eru að tala um