Agúrku grænpipars wiskey sour á meðal framúrstefnulegra kokteila á París
Á Reykjavík Coctail Weekend seðlinum á Café París verður boðið upp á fjóra kokteila. Að sögn Guðjóns Hermannssonar hjá Café París eru þrír þeirra byggðir upp á gini en sá fjórði viskí. Gefum Guðjóni orðið:
„Við höfum mikið verið að prófa okkur áfram í sýróps „infusions“. Einn kokteillinn inniheldur kanil- og epla „fusion“, en annar, sem við köllum „Johnny“, er byggður á kryddjurtasýrópi. Stjarnan okkar á þessum dögum er hins vegar L’amor eftir snillinginn hann Einar okkar; fallega fjólublár og rosalega skemmtilegur á bragðið. Við ákváðum síðan að við gætum ekki bara verið með gin-kokteila og lögðumst í dálitlar viskípælingar. Úr því varð til agúrku grænpipars wiskey sour.