Félagsdómur hefur úrskurðað verkfallsboðun Eflingar lögmæta. Fyrirhuguð verkföll 300 starfsmanna Eflingar á sjö hótelum Íslandshótela munu því hefjast á hádegi á morgun, þriðjudag. Tveir dómarar Félagsdóms skiluðu sérákvæði.
Fréttablaðið greinir frá.
„Þetta verkfall er löglegt. Aðgerðir hefjast á morgun í hádegi og í ljósi þessarar niðurstöðu hlýtur það að fara svo að við fáum flýtimeðferð með kæru okkar vegna þess úrskurðar sem kveðinn var upp rétt áðan í héraðsdómi með afhendingu kjörskrá,“ segir Sólveig Anna formaður Eflingar.
Fyrr í dag, í dómsuppkvaðningu fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur, var Eflingu gert að afhenda ríkissáttasemjara félagatal sitt. Efling ætlar að áfrýja niðurstöðu héraðsdóms og segir Sólveig Anna að gögnin verði ekki afhent fyrr en úrskurður fæst.
Segir hún að hún sé að ræða mikinn sigur: „…ekki bara fyrir Eflingu, samninganefnd Eflingar eða félagsmenn Eflingar, heldur er þetta líka sigur fyrir íslenska verkalýðshreyfingu. Þarna er staðfest, sem betur fer að lýðræðisleg réttindi verkafólks til þess að fá að leggja niður störf til að knýja á um réttlátan og eðlilegan kjarasamning, að ekki er hægt að ráðast að þeim með svo grófum og óforskömmuðum hætti eins og hér var reynt.“
Telur Sólveig Anna aðspurð ekki rétt að bíða með verkfall meðan beðið er eftir úrskurði. „…við vorum að enda á að vinna þetta mál sem segir að verkföllin okkar séu lögleg, þannig það væri afskaplega skrítinn afleikur hjá okkur að taka þá ákvörðun.