fbpx
Þriðjudagur 21.janúar 2025
Pressan

Konan skýrði frá sturtuvenju sinni og heit umræða hófst í kjölfarið – „Ég hélt að allir gerðu þetta“

Pressan
Laugardaginn 11. febrúar 2023 17:00

Skyldi hún gera þessi mistök?

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Óheppin kona lenti í miklum mótvindi eftir að hún skýrði frá baðvenju sinni en hún hélt að allir gerðu það sama og hún þegar þeir eru í sturtu.

Konan, sem er ensk, lærði væntanlega af þessu að sumu á maður bara að halda fyrir sjálfan sig.

Mirror segir að allt hafi þetta byrjað þegar hún sagði eiginmanni sínum frá „leyndarmáli“ sínu. Honum fannst það ógeðslegt og vildi ekki kannast við að hann gerði þetta þegar hann fer í sturtu.

Það sem konan sagði honum var að hún pissi oft í sturtunni. Þetta fannst eiginmanni hennar alls ekki í lagi.

Eftir langa umræðu um þetta ákvað konan að skrifa um þetta á Mumsnet, sem er vinsælasta breska síðan fyrir foreldra, til að sýna eiginmanninum fram á að það væri alvanalegt að fólk pissi í sturtu.

Hún stofnaði umræðuþráð undir fyrirsögninni „Þegar manni finnst í lagi að pissa í baði“.

Hún skrifaði síðan: „Ástkærum eiginmanni mínum finnst þetta ógeðslegt en mér finnst þetta í lagi. Heitt vatnið kallar fram þörf fyrir að pissa og ég nenni ekki að fara úr sturtunni, bleyta gólfið, þorna og svo framvegis. Þetta er gott fyrir umhverfið því ég slepp við að sturta niður og vatnið skolar þvaginu í burtu og þetta er bara þvag. Ég hélt að allir gerðu þetta.“

Ekki leið á löngu þar til fólk fór að láta heyra frá sér og konan sá fljótt að það er fjarri því að allir pissi í baði.

„Nei, þetta er slæm venja. Ég myndi ekki vera hrifinn ef maðurinn minn gerði þetta,“ skrifaði ein kona.

„Af hverju pissar þú ekki bara áður en þú ferð í bað? Þú verður að fyrirgefa en mér finnst þetta ógeðslegt,“ skrifaði önnur.

Miklar umræður sköpuðust um þetta og hvort sem fólk var með eða á móti þá voru allir með ákveðnar skoðanir á þessu.

„Ég finn alltaf þegar einhver er „sturtupissari“. Sturtuklefinn þeirra og baðherbergið lykta oft af þvagi eins og hlandskál, þið verðið að fyrirgefa en þetta er satt. Eini staðurinn þar sem þvag á heima er í klósettinu,“ skrifaði enn ein konan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Það er hollast að drekka kaffi á þessum tíma dags

Það er hollast að drekka kaffi á þessum tíma dags
Pressan
Í gær

Leynd viðvörunarmerki líkamans – 7 snemmbúin merki um Parkinson

Leynd viðvörunarmerki líkamans – 7 snemmbúin merki um Parkinson
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Það er svo sannarlega ekki þess virði að veipa“

„Það er svo sannarlega ekki þess virði að veipa“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Læknir segir mikilvægt að venja sig af þessu ef blóðþrýstingurinn er of hár

Læknir segir mikilvægt að venja sig af þessu ef blóðþrýstingurinn er of hár
Pressan
Fyrir 3 dögum

Zuckerberg gagnrýnir stjórn Biden harðlega – „Öskra og bölva“

Zuckerberg gagnrýnir stjórn Biden harðlega – „Öskra og bölva“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Elon Musk setti tölvuleikjasamfélagið á hliðina og er sakaður um svindl – „Almáttugur, þetta er næstum því of heimskulegt til að vera satt“

Elon Musk setti tölvuleikjasamfélagið á hliðina og er sakaður um svindl – „Almáttugur, þetta er næstum því of heimskulegt til að vera satt“
Pressan
Fyrir 4 dögum

Var sakaður um hryllilegan glæp skömmu eftir að þessi mynd var tekin

Var sakaður um hryllilegan glæp skömmu eftir að þessi mynd var tekin
Pressan
Fyrir 4 dögum

Þýskur nýnasisti skiptir um kyn til að freista þess að fá að afplána í kvennafangelsi

Þýskur nýnasisti skiptir um kyn til að freista þess að fá að afplána í kvennafangelsi