Hún skýrði frá þessu í myndbandi á TikTok og hefur það vakið mikla athygli. Í því segir hún að læknar hafi sagt henni að hún væri ekki með nýrnastein, heldur væri hún gengin 37 vikur með barn sitt.
„Þegar læknarnir komu inn og sögðu mér að „nýrnasteinninn“ væri í raun 37 vikna barn,“ segir hún í myndbandinu á TikTok.
Þetta kom henni mjög á óvart því hún hafði verið með blæðingar í hverjum mánuði, þó minni en venjulega. En af þessum sökum hafði hún ekki hugmynd um að hún væri barnshafandi.
Hún birti annað myndband þar sem hún fór nánar út í af hverju hún vissi ekki að hún væri barnshafandi. Í því birtir hún mynd af sér í bikiní, í íþróttum og með vinum sínum á meðgöngunni. Eins og fyrr sagði þá hafði hún blæðingar í hverjum mánuði meðan á meðgöngunni stóð og hún þyngdist „aðeins“ um 8 kíló og hélt að hún hefði bara bætt á sig nokkrum kílóum og tengdi þyngdaraukninguna ekki við þungun.
The Sun skýrir frá þessu og segir að barnið hafi fengið nafnið Kam.