fbpx
Þriðjudagur 23.júlí 2024
Eyjan

Nafnasamkeppni um hús íslenskunnar

Eyjan
Föstudaginn 3. febrúar 2023 16:46

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Menningar- og viðskiptaráðuneytið, Árnastofnun og Háskóli Íslands efna til nafnasamkeppni um nafn á nýju húsi íslenskunnar sem opnar í vor

Húsið mun hýsa fjölbreytta starfsemi Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands. Ríkið mun fá húsið afhent nú í febrúar en það mun opna formlega þann 19. apríl næstkomandi.

Áður en húsið opnar þarf að finna því nafn og ákváðu menningar- og viðskiptaráðuneytið, Árnastofnun og Háskóli Íslands að efna til nafnasamkeppni meðal almennings. Hægt er að skila inn tillögum að nafni á húsið á vef Árnastofnunar.

Samkeppnin stendur yfir út febrúar og í kjölfarið mun nefnd fara yfir tillögurnar og velja þá bestu. Nafnið verður svo afhjúpað við formlega opnun hússins þann 19. apríl og sigurvegarar nafnasamkeppninnar hljóta viðurkenningu.

,,Það hillir undir að íslenskan og okkar dýrmætasti menningararfi fái langþráð og verðskuldað lögheimili. Hús íslenskunnar markar vatnaskil fyrir starfsemi Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands. Með húsinu skapast loksins aðstaða til þess sýna okkar merkustu handrit sem eru samofin sjálfsmynd okkar sem þjóðar. Þetta verður sannkallað hús þjóðarinnar, því hvet ég sem flesta til þess að þátt í nafnasamkeppni fyrir hús íslenskunnar,‘‘ sagði Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Svarthöfði skrifar: Mjúk lending að hætti AGS – vaxtalækkun eftir ár, kannski

Svarthöfði skrifar: Mjúk lending að hætti AGS – vaxtalækkun eftir ár, kannski
Eyjan
Fyrir 1 viku

Borgin heldur áformum um flugvöll í Hvassahrauni til streitu og Njáll Trausti furðu lostinn – „Enginn pólitíkus á íslandi er að fara að skrifa upp á það“

Borgin heldur áformum um flugvöll í Hvassahrauni til streitu og Njáll Trausti furðu lostinn – „Enginn pólitíkus á íslandi er að fara að skrifa upp á það“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jón Sigurður skrifar – Farsælast að vera fullkomlega sannfærður um eigin ranghugmyndir

Jón Sigurður skrifar – Farsælast að vera fullkomlega sannfærður um eigin ranghugmyndir
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Einstaklingshyggjan hefur rænt okkur vitinu

Sigmundur Ernir skrifar: Einstaklingshyggjan hefur rænt okkur vitinu