Það var rífandi stemning í Íþróttavikunni með Benna Bó á föstudaginn þegar Halldór Gylfason, leikari, og Jóhann Alfreð, uppistandari og dómari í Gettu Betur, fengu sér sæti.
Félagaskiptaglugginn lokaði í vikunni og fór Chelsea hamförum eins og frægt er. Jóhann er mikill aðdáandi Todd Bohly. „Það er búið að vera gaman að fylgjast með eiganda Chelsea. KKÍ þyrfti að komast í veskið hans því það er alltaf opið. Chelsea hefur ekkert verið að spila vel og eru í tíunda sæti. Þetta er voðalega planlaust en þetta er spennandi leikmaður Enzó Fernandez.“
Halldór sem er ekkert mjög djúpur í enska boltanum greip þá boltanum á lofti og spurði. „Hvaða leikmaður er þetta fyrirgefið?“
Jóhann útskýrði þá hver Fernandez væri og hvurslags viðskipti þetta væri fyrir Benfica. „Mér finnst þetta segja hvað enska deildin er orðin mikil elítudeild að þarna er verið að kaupa einhvern strák á 100 plús milljónir punda og maður er smá bara. Einmitt flott.
Ég man þegar Juninho kom í Boro 1997 þá svaf maður varla, það var svo mikil stemning. En núna hugsar maður bara: Já ok flott.“