Ingólfur Þórarinsson, betur þekktur sem Ingó Veðurguð, hefur gefið út nýtt lag. Um er að ræða fyrsta nýja efnið sem kemur frá honum í þó nokkurn tíma en lítið hefur farið fyrir honum undanfarið tvö eftir að fjöldi nafnlausra frásagna birtist þar sem Ingólfur var sakaður um kynferðisofbeldi.
Nú virðist Ingó kominn aftur úr þessari pásu sinni og hefur gefið út lagið Gítarinn
Ingó segir í færslu á Facebook að hann elski fátt meira en að búa til tónlist. Síðustu 2 ár hafi verið lærdómsrík og hafi margir haldið að hann væri hreinlega hættur í tónlist og hafi sett gítarinn upp á hillu.
„Ég hef haft tíma til að spá í tónlist og mig langaði að gefa frá mér lag sem ég er ákaflega stoltur af. Ég hef alltaf komið til dyranna eins og ég er klæddur hvað varðar texta í lögunum mínum og í þessu er engin breyting.
Þetta lag var samið áður en ég fékk bestu fréttir lífs míns að ég væri að verða faðir sem hefur einnig hvatt man til að einblína á allt það sem er jákvætt.“
Texti lagsins fjallar um mann sem allir hafi snúið bakinu við og hefur ekkert nema gítarinn. „Hann situr einn í dimmu húsi, enginn honum hjá. Gítarinn er það eina sem hann á.“
Ingó stefnir svo á stórtónleika þann 10. mars undir yfirskriftinni „Loksins gigg“