Maður var ákærður fyrir líkamsárás, fyrir að hafa nánar til tekið rifið í tagl á öðrum manni, gripið í háls hans að aftanverðu, slegið hann með krepptum hnefa í höfuðið og víðsvegar í líkama, þannig að maðurinn féll í gólfið, og í kjölfarið veist að honum þar sem hann lá í gólfinu með ítrekuðum höggum og spörkum víðsvegar um líkamann. Árásarþolinn hlaut mar aftan á hnakka, opið sár á höfði, brot á vinstri vanga- og kjálkabeinum, og fleiri áverka.
Dómur var kveðinn upp í þessu máli við Héraðsdóm Reykjavíkur þann 26. janúar síðastliðinn. Atvikið átti sér stað í heimahúsi í Reykjavík í október árið 2020. Brotaþoli lýsti atvikum svo fyrir lögreglu að hann hefði verið í heimsókn hjá vinkonu sinni en hún brugðið sér frá og komið til baka í fylgd með árásarmanninum. Hann hafi þá verið að sinna uppvaski en hinn ákærði hefði umsvifalaust ráðist á sig aftan frá og gripið í hártaglið á sér. Lýsir hann síðan ofbeldinu eins og það er rakið hér að ofan.
Ákærði hafði áhugaverða sögu að segja í vitnastúku af atvikinu, eða öllu heldur forsögu þess. Sagði hann fyrir dómi að árásin hefði verið „endir sögu“. Hann hefði hitt brotaþolann í íbúð tveimur mánuðum fyrr í gegnum sameiginlegan félaga. Sameiginlegi félaginn og brotaþoli höfðu verið búnir að yfirtaka íbúð þar sem rúmliggjandi maður bjó. Segir hann mennina tvo, brotaþola og sameiginlega félagann, hafa lagst upp á rúmliggjandi manninn, haldið honum í neyslu en síðan yfirgefið hann. Hefði farlama maðurinn dáið, einn og yfirgefinn, fjórum dögum síðar.
Brotaþolinn hafi síðan, nokkru síðar, eftir að hafa verið á götunni um tíma, flutt inn á vinkonu hins ákærða. Ákærði og hún séu mjög góðir vinir en konan sé í veikri stöðu, hún sé með bæði asperger og tourette. Segir hinn ákærði að brotaþolinn hafi sýnt vinkonu sinni yfirgang og áreitt hana kynferðislega. Hafi hann verið búin að liggja uppi á vinkonunni í tvo daga þegar hún hringdi í hann og bað um hjálp.
Hinn ákærði viðurkenndi að hann hafi verið mjög reiður þegar hann mætti á vettvang en neitaði stórum hlut af ofbeldiskákærunni og sagðist hafa tekið mun mildilegar á manninum en þar er lýst.
Ekki þótti sannað að hinn ákærði hefði sparkað og kýlt í manninn eftir að hann féll í gólfið en dómari taldi sannað að henn hafði rifið í hár hans, tekið hann hálstaki og kýlt hann í höfuðið og víðsvegar í líkamann á meðan hann var uppistandandi.
Hinn ákærði er með töluverðan brotaferil að baki. Var hann dæmdur í 60 daga fangelsi og til greiðslu 700 þúsund króna í miskabætur.