Sunneva Eir Einarsdóttir samfélagsmiðlastjarna útskrifaðist á laugardag með mastersgráðu í markaðsfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Sunneva hélt veislu í tilefni útskriftarinnar, en hún sagðist ekki trúa því að hún væri að útskrifast með mastersgráðu.
Sunneva greindi frá útskriftinni á Instagram, þar sem hún er með tæpa 57 þúsund fylgjendur og birti myndir af sér í útskriftarkjólnum. Sunneva spurði fylgjendur sína hvað tæki við, hvort fólk væri að skrá sig í áframhaldandi nám eða annað.
View this post on Instagram