„Forsvarsmenn Íslandshótela hafna með öllu þeim ávirðingum sem fulltúrar Eflingar hafa sett fram og vísa til föðurhúsanna ásökunum um nokkurs konar þrýsting eða ólögmætar hótanir í garð starfsfólks.“
Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Íslandshótelum sem berst í kjölfar þess að Efling birti bréf eða veggspjald sem Íslandshótel höfðu að sögn Eflingar hengt upp í hótelum sínum fyrir starfsfólk. Eins heldur Efling því Íslandshótel hafi skyldað alla Eflingarfélaga á vinnustaðnum til að mæta á fund þar sem villandi og einhliða upplýsingum var haldið að þeim. Upplifi starfsfólk að atvinnuöryggi þeirra sé ógnað og finna fyrir vanlíðan vegna álags og þrýsting af afskiptum vinnuveitenda sinna.
Krafðist Efling þess að Íslandshóteli létu af „ólöglegum tilraunum sínum“ til að setja þrýsting á starfsfólk vegna yfirstandandi verkfallskosningar með „hótunum um tekjumissi og/eða loforðum um peningagreiðslur“
Íslandshótel hafna þessu með öllu. Í yfirlýsingu segir að fulltrúar Eflingar hafi haft óheftan og greiðan aðgang að öllum starfsmönnum Íslandshótela sem eru í Eflingu.
„Þar hafa því miður komið fram villandi upplýsingar, sem forsvarsmenn fyrirtækisins hafa séð sig knúna til að leiðrétta.
Engin þrýstingur hefur verið viðhafður af hálfu Íslandshótela, engin afskipti vegna yfirstandandi verkfallskosninga hafa átt sér stað né hótanir af nokkru tagi. Ávirðingum Eflingar er því hafnað með öllu.“