Það má með sanni segja að öll spjót standi á athafnamanninum Jóhannesi Páli Durr. Hann er einn fjögurra sem sóttur er til saka í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir aðild sína að Stóra Kókaínmálinu og og rétt fyrir hádegi í dag var glæsilegur Lexus-jeppi hans, af gerðinni Ux250h, árgerð 2019, seldur á uppboði hjá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu.
Áður hafði saksóknari farið fram á jeppinn, sem og forlátt Rolex-úr, yrði gerður upptækur enda hafi Jóhannes Páll keypt lúxusvarninginn fyrir illa fengið fé.
Fjómenningunum, Jóhannesi Páli, Páli Jónssyni, Daða Björnssyni og Birgi Halldórssyni er gefið að sök að hafa reynt að flytja inn tæplega 100 kíló að kókaíni sem falið var í vörusendingu á leið til landsins, ásamt peningaþvætti upp á 63 milljónir króna. Markaðsvirði kókaínsins er talið hafa verið um tveir milljarðar króna.
Hlutverk mannanna, sem eru á þrítugsaldri fyrir utan Pál sem er á sjötugsaldri, í innflutningum var mismunandi. Páll skaffaði aðgang að flutningsleið sinni en hann er timbursali og var efnið flutt inn í timbursendingu í gámi frá Brasilíu í gegnum Holland. Þar fannst kókaínið og var gerviefni komið fyrir í staðinn áður en það var sent til Íslands.
Að auki var Jóhannes Páll, sem er fyrrverandi liðsstjóri hjá íslensku landsliði í rafíþróttum, ákærður fyrir fíkniefnalagabrot en hann á að hafa haft haft í vörslum sinum 5,24 grömm af marijúana og 38,25 grömm af MDMA, sem lögregla fann við leit á heimili hans. Hann hefur játað sök varðandi þann ákærulið með fyrirvara um magnið.
Fjórmenningarnir gætu átt yfir höfði sér langa fangelsisdóma eða allt að 12 árum fyrir fíkniefnainnflutninginn til viðbótar refsinga fyrir peningaþvottinn.