Silfurskottur, maurar og mygla hafa gert pari sem keypti fasteign í Grindavík lífið leitt. Hafa þau stefnt fyrrverandi eiganda hússins og krefjast skaðabóta. Úrskurður vegna þessa máls féll í Héraðsdómi Reykjaness í morgun, 26. janúar.
Húsið, sem er steinsteypt, er byggt árið 1965 en bílskúr, sem telst með til fasteignarinnar var byggður 1968. Kaupverðið var 52 milljónir króna. Eftir að parið flutti inn kom í ljós að mikið var um maura og silfurskottur í húsinu. Við nánari skoðun kom í ljós að baðherbergisinnréttingar voru ónýtar vegna raka og mikill raki var undir öllum flísum og sturtu. Einnig voru allar neysluvatnslagnir á baðherberginu ónýtar. Bílskúrinn, sem hafði verið útbúinn sem íbúð, reyndist óíbúðarhæfur vegna myglu- og rakaskemmda. Þá segir að loftið í bílskúrnum hafi verið ónýtt vegna raka og myglu og þak skúrsins ekki verið í samræmi við kröfur byggingarreglugerðar.
Ennfremur segir að eldhúsinnrétting hafi verið ónýt vegna myglu. Ætla megi að ástæðan fyrir því sé sú að ekki hafi verið búið að leggja drenlögn í kringum húsið. Mikið hafi verið af maurum undir og bak við skápa og skúffur.
Í texta úrskurðarins segir síðan:
Stefnendur sendu tölvupóst 21. janúar 2022 til fasteignasalans og sonar stefndu vegna „tjóns sem skordýrafaraldurinn er að valda og hefur ollið“. Með kröfubréfi
lögmanns stefnenda 21. júní 2021 var gerð krafa um afslátt og/eða skaðabætur að fjárhæð 4.512.483 krónur vegna galla og áskilinn réttur til að hækka kröfuna. Þá var lýst yfir skuldajöfnun vegna kröfu stefnenda og eftirstandandi afsalsgreiðslu vegna fasteignarinnar. Loks var krafist viðurkenningar stefndu á ábyrgð á frekari kostnaði vegna galla. Með bréfi 29. júní 2022 var kröfum stefnenda hafnað. Stefnendur hafa því höfðað mál þetta.
Seljandi fasteignarinnar krafðist frávísunar meðal annars vegna þess að kröfugerðin væri óljós og hún gæti því ekki tekið til varna. „Kröfugerð í stefnu sé orðuð þannig að þess sé krafist að viðurkennt verði að stefnda beri skaðabótaábyrgð gagnvart stefnendum „hvoru fyrir sig“. Stefnda byggir á því að þar sem fasteignin sé í óskiptri sameign þá sé stefnendum skylt að hafa samaðild til sóknar,“ segir meðal annars um þetta í úrskurðinum.
Í niðurstöðu Héraðsdóms Reykjaness segir meðal annars að málið sé vanreifað. Í stefnu sé byggt á því að kostnaður kaupendanna vegna galla sé rúmlega 4,5 milljónir króna en engin grein sé gerð fyrir því um hvaða viðgerðir sé að ræða eða hvernig kostnaðurinn vegna þeirra sundurliðast. Ekki sé hægt að vísa með almennum hætti til óljósra reikninga sem hafa verið lagðir fram. Einnig sé vísað til nauðsynlegra viðgerða á göllum fasteignarinnar sem séu framundan. Engin grein sé gerð fyrir því um hvaða viðgerðir sé að ræða.
Af þessum ástæðum og ýmsum fleiri sem tilgreindar eru í úrskurðinum er málinu vísað frá dómi. Parið þarf að greiða seljanda fasteignarinnar 400 þúsund krónur í málskostnað.