Der Spiegel, Bloomberg, AP og fleiri fréttaveitur skýra frá þessu. Segja þær að Þjóðverjar muni jafnframt heimila öðrum ríkjum að senda Leopard skriðdreka til Úkraínu en hart hefur verið þrýst á Þjóðverja að undanförnu að heimila þetta.
Þetta eru mikil tíðindi því Úkraínumenn hafa lengi þrýst á bandamenn sína um að senda skriðdreka. „Þetta verður ein öflugasta sendingin og hún getur gert gæfumun, ekki bara í vörn heldur einnig þegar kemur að því að ýta Rússum til baka,“ sagði Anders Lomholt, sérfræðingur TV2 í varnarmálum, um ákvörðun Þjóðverja og Bandaríkjamanna.
Þýski miðillinn ntv segir að Þjóðverjar séu reiðubúnir til að senda heila skriðdrekadeild, sem samanstendur af 14 skriðdrekum, til Úkraínu. Þetta eru Leopard 2A6 skriðdrekar sem voru teknir í notkun 2001 og eru forverar Leopard 2 skriðdrekanna. Ekki verður þó hægt að senda þá til Úkraínu núna strax því það þarf fyrst að þjálfa úkraínska hermenn til að nota þá, útvega varahluti, þjálfa vélvirkja og einnig þarf að bíða eftir bandarísku Abrams M1 skriðdrekunum því Þjóðverjar vilja ekki vera í fararbroddi í þessu máli að sögn Lomholt.
Bandaríkjamenn hafa verið hikandi við að senda Abrams M1 skriðdreka til Úkraínu því þeir eru sagðir svo fullkomnir að erfitt verði að þjálfa úkraínska hermenn á skömmum tíma til að nota þá. Reuters, AP, Bloomberg og Wall Street Journal segja að nú séu Bandaríkjamenn hins vegar reiðubúnir til að senda Abrams skriðdreka til Úkraínu.
Wall Street Journal segir að þetta sé hluti af samningi Bandaríkjanna og Þýskalands þar sem Bandaríkin sendi töluverðan fjölda Abrams M1 til Úkraínu gegn því að Þjóðverjar sendi eina herdeild og heimili öðrum ríkjum að gera hið sama.
Anders Puck Nielsen, sérfræðingur við danska varnarmálskólann, sagði að fram að þessu hafi sú ákvörðun Bandaríkjanna að láta Úkraínumönnum HIMARS-flugskeytakerfi í té verið sú sem hefur haft mest áhrif á gang stríðsins. Ákvörðunin um að senda skriðdreka geti skipt sköpum fyrir baráttu Úkraínumanna í framtíðinni.
„Þetta er hlutinn sem vantaði. Nú eru þeir með allan pakkann til að stunda herkænskustríð. Þeir eru með stórskotalið, liðsflutningavagna og nú skriðdreka sem geta veitt stuðning með skothríð og hreyfanleika,“ sagði hann í samtali við TV2.