TV2 segir að hann telji sjálfan sig ekki vera liðhlaupa því hann hafi ekki skipt um lið og starfi heldur ekki fyrir annað ríki. Hann hafi aðeins sagt upp í vinnunni.
Það að hann lítur ekki á sig sem liðhlaupa á rætur að rekja til þess að hann veit hvernig Pútín og stjórn hans líta á liðhlaupa. Ófáir slíkir hafa týnt lífi í gegnum árin við dularfullar kringumstæður.
Hann skrifar greinar og notar Twitter til að vinna gegn Pútín og stjórn hans og segir að Pútín og stjórnin séu spillt. „Ég vil ekki taka þátt í þessu brjálæði. Ég þarf ekki að láta sem ég styðji eða finnist í lagi að það sé í lagi að tala fyrir árásarstríði,“ segir hann.
„Nú er miklu auðveldara fyrir mig að fylgjast með stríðinu, fylgjast með hvað er að gerast og hafa skoðun á því. Á því sem er að gerast í raun og veru.“
Hann segir að Pútín líti ekki bara á Úkraínu sem óvin, hann líti einnig á þau ríki sem styðja Úkraínu, þá sérstaklega Bandaríkin, sem óvini.
Af þeim sökum telji hann að þau vestrænu ríki, sem styðja Úkraínu, eigi að vera undir það búin að til hernaðarátaka komi við Rússland og hann hvetur Vesturlönd því til að veita Úkraínu eins mikinn stuðning og þau geta.
B.T. hefur eftir Niels Bo Poulsen, hjá danska varnarmálaskólanum, að rétt sé að Pútín geti dottið í hug að efna til átaka í löndum sem styðja Úkraínu. „Ef NATO-ríki á borð við Pólland gefur Úkraínu stóran hluta af vopnum sínum, þá á Rússland mun auðveldara með að efna til átaka í Póllandi,“ sagði hann og bætti við að það þjóni því hagsmunum Vesturlanda að styðja Úkraínu við að verja sig.