fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Pressan

Ghislaine Maxwell telur að Jeffrey Epstein hafi verið myrtur

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 24. janúar 2023 08:00

Epstein og Maxwell. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ghislaine Maxwell, 61 árs, afplánar nú 20 ára fangelsisdóm í Bandaríkjunum fyrir að hafa lokkað ungar stúlkur til sín og Jeffrey Epstein á árunum 1994 til 2004. Maxwell fann barnungar stúlkur, sem voru í erfiðri stöðu, og lokkaði þær til sín með fögrum fyrirheitum. Epstein misnotaði þær síðan kynferðislega og seldi jafnvel mansali.

Epstein fannst látinn í fangaklefa í fangelsi á Manhattan í ágúst 2019 en hann hafði þá verið ákærður fyrir mansal og vændissölu.

Maxwell kom nýlega fram í sjónvarpsþættinum „Talk TV‘s Jeremy Kyle Live: Ghislaine Behind Bards. Þar ræddi hún um mál Epstein og sagðist telja að hann hafi verið myrtur í fangelsinu. Yfirvöld komust að þeirri niðurstöðu að hann hefði framið sjálfsvíg.

Maxwell og Epstein höfðu þekkst lengi og verið par. Hún sagðist hafa verið þess fullviss að Epstein myndi áfrýja dómnum og að hann hefði notið verndar gegn saksókn vegna fyrri samnings hans við ákæruvaldið en sjálf hafi hún ekki verið nefnd í þeim samningi.

„Í hreinskilni sagt þá vildi ég óska að ég hefði aldrei hitt hann. Þegar ég horfi til baka, þá óska ég þess líklega að ég hefði haldið mig á Englandi.“

Maxwell, sem er dóttir Robert Maxwell fjölmiðlamógúls, sagðist ekki hafa vitað að Epstein væri svona „hræðilegur“ en núna sjái hún það þegar hún horfir til baka.

Maxwell sagðist telja að myndin fræga af Andrew prins og Virginia Giuffre sé fölsuð. Hún er sögð hafa verið tekin heima hjá Maxwell í Lundúnum. Á henni sést Andrew standa með handlegginn utan um Giuffre. Hún heldur því fram að hann hafi beitt hana kynferðislegu ofbeldi þegar hún var barn að aldri. Andrew gerði sátt við Giuffre fyrir nokkru þar sem hann féllst á að greiða henni bætur vegna málsins en hann játaði ekki sekt með sáttinni. Sky News skýrir frá þessu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Hafa risavaxnir menn einhvern tímann verið til?

Hafa risavaxnir menn einhvern tímann verið til?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Athyglisverðar myndir prýða 1.600 ára gamlar myntir sem fundust á Ermarsundseyjunum

Athyglisverðar myndir prýða 1.600 ára gamlar myntir sem fundust á Ermarsundseyjunum
Pressan
Fyrir 4 dögum

Páfagarður bannfærir erkibiskup sem sagði Frans páfa vera „þjón djöfulsins“

Páfagarður bannfærir erkibiskup sem sagði Frans páfa vera „þjón djöfulsins“
Pressan
Fyrir 4 dögum

Færð þú frið í sumarfríinu? Fyrirtæki hafa samband við þriðja hvern starfsmann í sumarfríinu

Færð þú frið í sumarfríinu? Fyrirtæki hafa samband við þriðja hvern starfsmann í sumarfríinu
Pressan
Fyrir 5 dögum

Sjö ávanar sem gera tannlækninn þinn ríkan

Sjö ávanar sem gera tannlækninn þinn ríkan
Pressan
Fyrir 5 dögum

Fjallgöngumaður hvarf fyrir 22 árum – Fannst nýlega

Fjallgöngumaður hvarf fyrir 22 árum – Fannst nýlega
Pressan
Fyrir 5 dögum

„Gerist bara einu sinni á ævinni“ – Einstakt tækifæri til að sjá sprengingu á dvergstjörnu

„Gerist bara einu sinni á ævinni“ – Einstakt tækifæri til að sjá sprengingu á dvergstjörnu
Pressan
Fyrir 5 dögum

Grunaður um að hafa myrt konu og dætur íþróttafréttamanns með lásboga

Grunaður um að hafa myrt konu og dætur íþróttafréttamanns með lásboga