Þetta er eitthvað sem enginn vill segja upphátt því hin hörmulegi fylgifiskur stríðsins er að fólk deyr daglega. En heimildarmenn segja að það megi einnig sjá jákvæð áhrif af stríðinu hvað varðar það að prófa ný vopn og bardagaaðferðir.
Þetta gerir Vesturlöndum kleift að prófa nýja tækni og vopn á þann hátt sem sjaldan er mögulegt, í stríði.
Eitt besta dæmið um tækni er app sem Úkraínumenn gerðu. Samkvæmt frétt The Guardian þá heitir appið ePPO og notar það gps farsímans og áttavita til að segja umheiminum frá grunsamlegum hlutum á flugi. Appið er notað til að bera kennsl á rússneska dróna og til að auðvelda Úkraínumönnum að skjóta þá niður. Það eina sem notandinn þarf að gera er að ýta á takka á appinum en með því sendir appið nákvæma staðsetningu til úkraínska hersins.
CNN skýrði frá því nýlega að Bandaríkjaher hafi veitt hugvitssemi Úkraínumanna á vígvellinum athygli. „Hugvitssemi þeirra er einfaldlega frábær,“ sagði Seth Jones, stjórnandi hjá hugveitunni Center for Strategic and International Studies.
Ónafngreindir heimildarmenn innan leyniþjónustustofnana segja að Úkraína sé orðin „tilraunastofa með vopn“ því mörg af vestrænu vopnunum hafi aldrei verið notuð í stríði tveggja iðnvæddra ríkja.
CNN segir að Úkraínumenn hafi til dæmis breytt venjulegum pallbílum í skotpalla fyrir flugskeyti og þeir hafa fundið leið til að festa háþróuð bandarísk flugskeyti á gömlu sovésku MIG orustuþoturnar sem þeir eiga.