Ítalska blaðið Gazetta dello Sport segist hafa heimildir fyrir því að Svíinn magnaði, Zlatan Ibrahimovic, muni leggja knattspyrnuskóna á hilluna í sumar þegar að samningur hans við ítalska úrvalsdeildarfélagið AC Milan rennur út.
Hinn 41 árs gamli Zlatan taki þessa ákvörðun með það til hliðsjónar að hafa nú til lengri tíma verið að glíma við hnémeiðsli. Zlatan muni hins vegar ekki yfirgefa herbúðir AC Milan heldur taka að sér hlutverk sendiherra hjá félaginu.
Zlatan hefur verið frá á yfirstandandi tímabili vegna hnémeiðsla en hafði gert sér vonir um að snúa aftur í leikmannahóp AC Milan gegn Tottenham í Meistaradeild Evrópu. Hins vegar eru líkurnar á endurkomu þá taldar afar litlar en leikirnir við Tottenham í 16-liða úrslitum fara fram um miðjan febrúar.
Þessi sænski markahrókur hefur verið á mála hjá AC Milan frá því árið 2020 er hann kom til félagsins frá LA Galaxy. Þar áður hafði hann unnið glæsta sigra með félögum á borð við Paris Saint-Germain, Barcelona, Juventus, Inter- og AC Milan.
Þá var Zlatan á mála hjá Manchester United á árunum 2016-2018.