Leikarinn Alec Baldwin hefur verið ákærður fyrir manndráp af gáleysi eftir að voðaskot reið af á tökustað kvikmyndarinnar Rust.
Konan sem hafði umsjón með vopnum sem notuð voru í myndinni, Hannah Gutierrez Reed er einnig ákærð fyrir manndráp af gáleysi.
Saksóknari í Santa Fe, Mary Carmack–Altwies, tilkynnti þetta í dag í yfirlýsingu.
Kvikmyndatökustjórinn Halyna Hutchins lét lífið á tökustað Rust í október 2021 eftir að voðaskot reið af úr byssu sem Alec Baldwin hélt á, en hann taldi skotið óhlaðið.
Fógetinn í Santa Fe, Adan Mendoza hefur farið fyrir rannsókn málsins og hefur lýst því að mikil vanræksla hafi átt sér stað á tökustað sem hafi gert það að verkum að harmleikurinn átti sér stað.
Baldwin sjálfur hefur kallað atburðinn hörmulegt slys og hefur hann reynt að hreinsa nafn sitt með því að lögsækja þá aðila sem sáu um vopnið sem honum var rétt á tökustað. Hann hefur haldið því fram að honum hafi verið sagt að byssan væri örugg.
Í lögsókn sinni segir hann að hann hafi verið að æfa með Hutchins fyrir tökur og hafi því beint byssunni í átt að henni og tekið í gikkinn, án þess að vita að skot væri í vopninu.
Lögmaður Hannah Gutierrez Reed hefur haldið því fram að hún hafi ekki sett skotið í byssuna heldur hafi verið brögð í tafli. Yfirvöld hafa þó engin sönnunargögn fundið sem renna stoðum undir þá kenningu.
Myndskeið voru gefin út í apríl á síðasta ári sem voru tekin upp fyrir og eftir voðaskotið. Þar má sjá Baldwin í töluverðu áfalli.
Baldwin heyrist á upptökunum ítrekað halda því fram að ekki hafi áður átt sér vandamál með skotvopnin á tökustað myndarinnar. Aðstandendur hinnar látnu höfðuðu mál vegna andláts hennar þar sem því er haldið far að vegna tilrauna til að spara við framleiðslu myndarinnar hafi öryggis ekki verið fyllilega gætt og því hafi farið sem fór. Kvikmyndatökuliði var sömuleiðis sektað um næstum 137 þúsund dollara eftir úttekt öryggiseftirlits.
Sjá einnig: Birta myndskeið sem voru tekin fyrir og eftir voðaskotið – „Ég dreg byssuna hægt upp“