fbpx
Þriðjudagur 26.nóvember 2024
Pressan

Þarf að svara til saka fyrir mannvonsku sína gagnvart heimilislausri konu

Pressan
Fimmtudaginn 19. janúar 2023 15:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eigandi listagallerís í San Fransisco, Collier Gwin að nafni, var handtekinn í gær og ákærður fyrir að brjóta á heimilislausri konu þann 9. janúar síðastliðinn. TMZ greinir frá.  Athæfi Gwin vakti gríðarlega reiði á samfélagsmiðlum en þar mátti sjá hann standa í mestu makindum fyrir framan listagallerí sitt, Foster Gwin Gallery, og sprauta vatni á heimilislausa konu sem sat á götunni og ausa svo yfir hana svívirðingum. Mikil reiði braust út vegna myndbandsins og hefur listagalleríið meðal annars orðið fyrir ítrekuðum skemmdarverkum síðan.

Eftir talsverða pressu í fjölmiðlum, þar sem Gwin var meðal annars sagður vera versti maður á jörðinni, steig galleríeigandinn loks fram og baðst afsökunar á hegðun sinni.

Það dugði þó ekki til þess að sleppa við langan arm réttlætisins.

„Þetta var gjörsamlega óásættanleg hegðun og Gwin mun nú þurfa að taka afleiðingum gjörða sinna,“ er haft eftir Brooke Jenkins, saksóknara. Þá hvatti hún skemmdarvarga til þess að láta þegar af þeirri hegðun sinni að skemma listagalleríið. Það væri ekki rétta svarið við gjörðum Gwin.

Hér má sjá athæfi Gwin sem vakti gríðarlega athygli

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 5 dögum

Dýrasti banani heims? – Banani á vegg seldist fyrir tæpar 900 milljónir á uppboði

Dýrasti banani heims? – Banani á vegg seldist fyrir tæpar 900 milljónir á uppboði
Pressan
Fyrir 5 dögum

Þingkona úr innsta hring Trump hótar flokksfélögum hefndum ef þeir kyssa ekki vöndinn – „Þá skulum við birta ALLT“

Þingkona úr innsta hring Trump hótar flokksfélögum hefndum ef þeir kyssa ekki vöndinn – „Þá skulum við birta ALLT“
Pressan
Fyrir 5 dögum

Hvíthákarl varð manni að bana

Hvíthákarl varð manni að bana
Pressan
Fyrir 5 dögum

Þótti dóttirin vera „of falleg til að geta verið dóttir hans“ – DNA-próf afhjúpaði ótrúlegan sannleikann

Þótti dóttirin vera „of falleg til að geta verið dóttir hans“ – DNA-próf afhjúpaði ótrúlegan sannleikann