Þetta segir lögmaður sem sér um málarekstur margra fjárfesta gegn Musk en réttarhöld í málinu hófust í San Francisco í gær.
Málið á rætur að rekja til færslu Musk á Twitter 2018 þar sem hann sagðist vera að íhuga að afskrá Tesla af hlutabréfamarkaði og greiða 420 dollara fyrir hvern hlut. Hann skrifaði einnig að búið væri að ganga frá fjármögnun. Í annarri færslu sagði hann að stuðningur fjárfesta hefði fengist.
Þetta hafði mikil áhrif á gengi hlutabréfa í Tesla og í kjölfarið höfðuðu margir hluthafar mál á hendur Musk.
„Lygar hans gerðu að verkum að venjulegt fólk eins og Glen Littleton tapaði milljónum dollara,“ sagði Nicholas Porritt, lögmaður, í upphafsávarpi sínu í gær. Hann sér um málareksturinn fyrir hönd Littleton og fleir hluthafa.
Porritt sagði að Musk hefði ákveðið að skrifa verðið 420 dollara í gríni.
Reiknað er með að réttarhöldin taki þrjár vikur. Musk mun bera vitni, hugsanlega á morgun. Hann hefur vísað því á bug að hann hafi verið óheiðarlegur í málinu.
Alex Spiro, einn lögmanna hans, segir að hugsanlega hafi orðavalið í tístunum ekki verið eins og best sé á kosið en hafi þó „ekki einu sinni verið nærri því að vera svindl“.
Hann sagði að það sem Musk var að segja í tístunum hafi verið að honum væri alvara með að einkavæða Tesla.