„Ég er ekki mjög góður á skíðum og það er ekki mjög gott að hlaupa í svona miklum kulda,“ skrifaði hann brattur og vísaði þar til rússneska vetrarins. „Ég hlustaði því á ráðleggingar veðurfræðinganna og fór í hitann,“ bætti hann við og setti broskarl í lokinni.
Dolzhenko er 43 ára þingmaður á héraðsþinginu í Vologda.
Myndbirting hans vakti mikla reiði í Rússlandi og margir létu heyra í sér því fólki fannst ekki við hæfi að þingmaður sé að birta slíkar færslur á meðan landar hans berjast í Úkraínu.
TV2 segir að svo virðist sem Dolzhenko hafi áttað sig á vandanum því í framhaldi af þessu birti hann mynd af sér og var hún sögð tekin í Vologda. Á myndinni sést hann ásamt Ksenija Shoigu, dóttur Sergei Shoigu varnarmálaráðherra. Bæði eru þau í sumarfatnaði og segir Dolzhenko hafa rekist á hana í verslunarmiðstöð.
En það var eitt vandamál því notendur samfélagsmiðla áttuðu sig á að í rúðunni á bak við Dolzhenko sást nafnið Louis Féraud speglast. Þetta er franskt tískuhús sem er ekki með starfsemi í Rússlandi. Nokkrum dögum síðar hafði óháði miðillinn Sota grafið upp að myndin var tekin í verslunarmiðstöð í Dubai.
Héraðsstjórinn í Vologda, Oleg Kuvshinnikov, fordæmdi myndbirtingar Dolzhenko á mánudaginn og hvatti um leið stjórnmálamenn og embættismenn í héraðinu til að vera ekki að ferðast til útlanda. „Á mjög erfiðum tímum fyrir landið er óásættanlegt að stjórnmálamenn og embættismenn séu í fríi á lúxusstöðum og birti meðvitað ögrandi myndir á samfélagsmiðlum,“ sagði Kuvshinnikov að sögn rússneska dagblaðsins Kommersant.
Andrey Turchak, ritari Sameinaðs Rússlands (sem er flokkur Pútíns) tjáði sig einnig um myndbirtingarnar á Telegram og sagði: „Það er hægt að gera mikið í lífinu, hlaupa, kafa, fara á skíði . . . En það er réttur staður og stund fyrir allt.“
Hann sagði síðan að Dolzhenko yrði rekinn úr Sameinuðu Rússlandi.
Maksim Vasiljev, sem er þingmaður á héraðsþingi Kursk, eyddi áramótunum á baðströnd í Mexíkó. Hann birti myndband af sér að drekka kokteil þar og sendi kveðjur heim til samlanda sinna.
Þetta vakti einnig mikla reiði og Roman Staravoyt, héraðsstjóri í Kursk, lýsti yfir óánægju sinni og hneykslun á þessu í færslu á Telegram.
Andrey Turchak, ritari Sameinaðs Rússlands, brást einnig ókvæða við og sagði færslu Vasiljev vera „toppinn á kaldhæðninni og ómanneskjulegheitum“ og hvatti Vasiljev og eiginkonu hans til að segja sig úr flokknum. „Enginn heiður, engin virðing, enginn heili,“ sagði Turchack.
Málin hafa vakið svo mikla athygli og reiði að það hefur afleiðingar í mörgum héruðum að sögn Kommersant. Segir blaðið að héraðsstjórar og forystumenn stjórnmálaflokkanna hafi nú óformlega bannað stjórnmálamönnum að ferðast til útlanda.