fbpx
Miðvikudagur 11.desember 2024
Fókus

Ártöl sem við áttum ekki von á – Faxið var fundið upp á undan símanum og fallöxin notuð til 1977

Guðrún Gyða Eyþórs Árnadóttir
Miðvikudaginn 18. janúar 2023 22:31

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tímii er afstætt hugtak eins og sjá má á eftirfarandi dæmum um tímasetningar sem kannski kunna að koma á óvart.

Síðasta stríðsekkjan lést 2020.

Borgarastyrjöldin í Bandaríkjunum tók enda árið 1865. Þúsundir manna höfðu látist í stríðinu og eftir sátu þúsundir ekkna sem allar áttu rétt á lífeyri frá ríkinu. En síðasta borgarstríðsekkjan sem fékk tékka um hver mánaðamót, Helen Viola Jackson, lést ekki fyrr en árið 2020, 155 árum eftir lok stríðsins.

Helen var aðeins 17 ára gömul þegar hún giftist 93 ára gömlum manni sem barist hafði í borgarastyrjöldinni. Honum vantaði reyndar ekki eiginkonu heldur ráðskonu en stakk upp á hjónabandi til að tryggja framfæri Helen þegar hann létist, sem gerðist nokkrum mánuðum síðar.  Og þar sem hann var hermaður borgarastríðsins var Helen tæknilega séð stríðsekkja. Hún lifði til 100 ára aldurs og fékk greiddan lífeyri fyrir þjónustu bónda síns í borgarastyrjöldinni í ríflega 80 ár.

Bréfsíminn var ómissandi.

Flest höfum við lagt faxtækjunum sem voru ómissandi á áttunda og níunda áratugnum

En faxið var reyndar fundið upp á undan símanum, eða árið 1843. Þá var til að mynda fyrrnefnd borgarastríð ekki enn hafið. En bréfsímarnir náðu aldrei því flugi sem uppfinningamaðurinn Alexander Bain hafði vonast til og smám saman gleymdust faxtækin. Það var ekki fyrr en á sjöunda áratug síðustu aldar sem einhver blés rykið af þessari snilldaruppgötvun.

Var þá tæknin að baki faxinu svo að segja algjörlega óbreytt frá faxinu sem Bain fékk einkaleyfi á 120 árum fyrr.

Frá aftöku í frönsku byltingunni.

Flest tengjum við fallöxina við frönsku byltinguna, og með réttu reyndar, þar sem hún var fundin upp til að hraða aftökum aðalsins. Fyrsta aftakan með fallöxi fór fram 1792 og ári síðar misstu kóngur og drottninga Frakklands kollinn af hennar völdum.

En það sem kannski færri vita er að Frakkar héldu áfram að nota fallöxina og var síðasta aftakan í Frakklandi með fallöxi árið 1977.

Fjórum árum síðar var dauðarefsing afnumin í Frakklandi og þá fyrst var þjónustu fallaxarinnar við franska ríkið lokið. .

Anna Frank, Martin Luther King og Barbara Walters.

Við tengjum nöfnin Anna Frank, Martin Luther King og Barbara Walters við afar ólíka hluti á ólíkum tímabilum.

Anna Frank var ung gyðingastúlka sem faldi sig ásamt fjölskyldu sinni á háalofti hjá vinafólki til að sleppa undan nasistum seinni heimsstyrjaldarinnar. Fjölskyldan fannst þó og lést Anna rétt fyrir stríðslok, árið 1945, en skildi eftir sig áhrifamikla dagbók sem grípur lesendur enn þann dag í dag.

Martin Luther King var einn helsti mannréttindafrömuður allra tíma, maður sem átti sér draum. Hann var yngsti einstaklingur til að hljóta friðarverðlaun Nóbels árið 1964 en var myrtur fjórum árum síðar.

Barbara Walters var einn þekktasti fréttamaður Bandaríkjanna, og heimsins alls reyndar. Hún var með fyrstu konunum til að ná slíkum frama og tók Barbara viðtöl við þjóðarleiðtoga, stórstjörnur og trúarleiðtoga fram yfir áttrætt. Hún lést á síðasta ári.

Hvað eiga þessir þrír gjörólíku einstaklingar sameiginlegt? Þau voru öll fædd sama ár, 1929.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Ragnar fékk áfall þegar vaktfélagi hans svipti sig lífi – „Hann bjargaði mörgum mannslífum, af hverju gat ég ekki bjargað hans?“

Ragnar fékk áfall þegar vaktfélagi hans svipti sig lífi – „Hann bjargaði mörgum mannslífum, af hverju gat ég ekki bjargað hans?“
Fókus
Í gær

Raunveruleikastjarna birti sláandi mynd – Hefur nánast eytt aleigunni að komast til botns í þessu

Raunveruleikastjarna birti sláandi mynd – Hefur nánast eytt aleigunni að komast til botns í þessu
Fókus
Fyrir 2 dögum

Hawk Tuah-gellan í klandri út af rafmyntabraski – „Þú stalst af mér ævisparnaðinum“

Hawk Tuah-gellan í klandri út af rafmyntabraski – „Þú stalst af mér ævisparnaðinum“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Íslensk móðir skráði sig á Tinder og fékk áfall vegna þess sem hún sá: „Mér finnst þetta svo hræðilega rangt“

Íslensk móðir skráði sig á Tinder og fékk áfall vegna þess sem hún sá: „Mér finnst þetta svo hræðilega rangt“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Teddi náði botninum eftir að sérsveitin handtók hann í húsgagnaverslun

Teddi náði botninum eftir að sérsveitin handtók hann í húsgagnaverslun
Fókus
Fyrir 4 dögum

Svava Kristín lenti í slysi á unglingsaldri – „Ég get ekki orðið hlaupari en ég get gert margt annað“

Svava Kristín lenti í slysi á unglingsaldri – „Ég get ekki orðið hlaupari en ég get gert margt annað“